Viðskipti erlent

ESB hefur rann­sókn á söluháttum Shein og ó­lög­legum varningi

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Shein og Temu hafa náð gríðarlegum vinsældum með því að selja vörur á hreint ótrúlegu verði. Komið hefur í ljós að vörurnar eru hins vegar ekki alltaf í samræmi við lög og reglur.
Shein og Temu hafa náð gríðarlegum vinsældum með því að selja vörur á hreint ótrúlegu verði. Komið hefur í ljós að vörurnar eru hins vegar ekki alltaf í samræmi við lög og reglur. Getty

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fyrirskipað rannsókn á kínversku netversluninni Shein. Rannsóknin mun meðal annars miða að því að varpa ljósi á umfang sölu vara sem standast ekki Evrópulög og „ávanabindandi“ viðskiptahætti.

Grunur leikur á um að ólöglegur varningur á borð við vopn og kynlífsdúkkur sem líkjast börnum hafi verið seldar í gegnum síðuna. Þá hafa rannsóknir bent til þess að fjöldi vara innihaldi innihaldsefni sem eru bönnuð í Evrópu.

Einnig stendur til að rannsaka „ávanabindandi“ viðskiptamódel Shein, sem er sagt gera neytendur háða þjónustunni með leikjum, verðlaunum og bónuspunktum. Þá mun það verða skoðað hvernig Shein leitar sífellt á neytendur með tilboð og uppástungur.

Ráðist var í áþekka rannsókn á Temu árið 2024.

„Okkur grunar að kerfið sem Shein byggir á sé ekki til þess gert að koma í veg fyrir sölu ólöglegs varnings,“ hefur Guardian eftir heimildarmanni. „Ólöglegar vörur? Það er ennþá hellingur af þeim til sölu þannig að eitthvað er líklega ekki að virka.“

Yfirvöld í Frakklandi hafa hótað því að banna Shein vegna sölu fyrirtækisins á kynlífsdúkkum sem líkjast börnum. Þá hafa stjórnvöld þar í landi meðal annars farið fram á að fyrirtækið taki upp aldursstýringu til að forða börnum frá því að sjá óviðeigandi vörur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×