Benítez valtur í sessi og gamall lærisveinn hans gæti stýrt Sverri Sindri Sverrisson skrifar 18. febrúar 2026 14:31 Rafa Benítez stýrir Panathinaikos í Evrópudeildinni annað kvöld. Getty/Milos Bicanski Leikmenn Panathinaikos eru sagðir óánægðir með störf þjálfarans Rafa Benítez og forráðamenn félagsins eru sagðir með mögulegan arftaka í sigtinu. Sá spilaði undir stjórn Benítez hjá Liverpool á sínum tíma.
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason gæti því verið að fá nýjan þjálfara í Grikklandi. Sverrir ku hafa verið tæpur vegna meiðsla og missti af leik Panathinaikos á sunnudaginn, þegar liðið gerði aðeins 1-1 jafntefli við eitt af neðstu liðum grísku úrvalsdeildarinnar, AEL. Panathinaikos er í 5. sæti deildarinnar og búið að missa efstu þrjú liðin, AEK, Olympiacos og PAOK, langt fram úr sér. Starfið í húfi á sunnudaginn? Næsti leikur Panathinaikos er við Viktoria Plzen í Evrópudeildinni annað kvöld. Samkvæmt gríska miðlinum Sport 24 gæti deildarleikurinn við OFI á sunnudaginn svo ráðið úrslitum um framtíð Benítez. Benítez er hins vegar á himinháum launum, þeim hæstu sem þjálfari hefur fengið í grísku deildinni, og ljóst að ekki yrði ódýrt að láta hann fara. Biscan gæti tekið við Verði niðurstaðan sú er Panathinaikos hins vegar sagt vera komið með Króatann Igor Biscan í sigtið sem mögulegan arftaka. Biscan lék einmitt undir stjórn Benítez og var í leikmannahópnum þegar Liverpool vann úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með ógleymanlegum hætti árið 2005, þó að hann spilaði ekki. Biscan stýrði síðast liði Al-Ahli í Katar en er nú án starfs.
Gríski boltinn Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA Sjá meira