Gríski boltinn

Fréttamynd

Arnór seldur til Grikk­lands

Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er á leið til grísku nýliðanna í Kalamata eftir að sænsku meistararnir ákváðu að selja hann til Grikklands.

Fótbolti
Fréttamynd

Benítez rekinn eftir 40 leiki

Rafael Benítez hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Sverris Inga Ingasonar og félaga í Panathinaikos í Grikklandi. Hann entist aðeins rúmt hálft ár í starfi.

Fótbolti
Fréttamynd

Sverrir Ingi leiddi sitt lið til sigurs

Sverrir Ingi Ingason, fyrirliði Panathinaikos fór fyrir sínu liði er það hafði betur gegn OFI í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 2-0 sigur Panathinaikos.

Fótbolti
Fréttamynd

Sverrir heim­sótti ó­vinnandi vígi

Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði Panathinaikos er liðið féll úr leik í grísku bikarkeppninni með 2-0 tapi á útivelli gegn PAOK, sem hefur ekki tapað á heimavelli í heilt ár.

Fótbolti
Fréttamynd

Hörður skoraði og Sverrir hélt hreinu

Hörður Björgvin Magnússon skoraði fyrir Levadiakos í 2-0 sigri gegn Kifisia og Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos í 3-0 sigri gegn Aris. Sigurliðin eru komin áfram í undanúrslit gríska bikarsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Leik­tíma Sverris breytt þrisvar í dag vegna veðurs

Leikur Feyenoord við Panathinaikos í Evrópudeildinni í fótbolta mun fara fram klukkan 19:00 í kvöld í Rotterdam. Það er upprunalegur leiktími en honum var í morgun flýtt til 14:30 vegna veðurviðvörunar en seinkað aftur seinni partinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Hjörtur skoraði þegar Volos tryggði sætið

Miðvörðurinn Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn og skoraði eitt þriggja marka Volos í 3-0 sigri á botnliði Lamia þegar liðin mættust í neðra umspili efstu deildar Grikklands. Með sigrinum er endanlega ljóst að Hjörtur og félagar halda sæti sínu í deildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Hörður í hóp eftir tæp­lega tveggja ára meiðsli

Hörður Björgvin Magnússon var í leikmannahópi Panathinaikos í fyrsta sinn í tæp tvö ár, en kom ekki við sögu. Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos, sem vann 1-2 gegn AEK í næstsíðustu umferð grísku úrvalsdeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Lyftu sér upp í annað sætið

Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í Panathinaikos eru í harðri baráttu um sæti í undankeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð. Liðið vann mikilvægan sigur í kvöld.

Fótbolti