Fótbolti

Ísak lagði upp sigur­markið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísak Snær Þorvaldsson átti stoðsendingu á úrslitastundu í dönsku deildinni í kvöld.
Ísak Snær Þorvaldsson átti stoðsendingu á úrslitastundu í dönsku deildinni í kvöld. vísir/Anton

Ísak Snær Þorvaldsson og félagar í Lyngby unnu mikilvægan sigur á Randers í kvöld í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Lyngby vann leikinn 2-1 og náði um leið Randers að stigum í 10. til 11. sæti töflunnar. Randers heldur tíunda sætinu á betri markatölu.

Ísak Snær átti mikinn þátt í sigrinum því hann lagði upp sigurmarkið sem Markus Anderson skoraði á 69. mínútu.

Frederik Gytkjær kom Lyngby í 1-0 á 23. mínútu en Mohamed Sankoh jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Ísak Snær var í byrjunarliði Lyngby eins og Davíð Helgi Aronsson sem var allan leikinn í miðri vörninni. Ísak fór af velli á 87. mínútu en þá kom Daníel Kristjánsson inn á völlinn sem varamaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×