Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Atli Ísleifsson skrifar 18. febrúar 2026 15:03 Kristín Gunnarsdóttir hefur stýrt hlaðvarpinu Komið gott ásamt Ólöfu Skaftadóttur síðustu misserin. Þar hefur þeim stöllum verið tíðrætt um stöðu Kristínar á vinnumarkaði, en hún starfaði lengi hjá Eflu en lét þar af störfum á síðasta ári. Hefur þá jafnan verið rætt um að hún hefði „hætt í dagvinnu“. Landsbankinn Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði samskipta og menningar hjá Landsbankanum sem tekur til starfa í lok febrúar. Kristín hefur ásamt Ólöfu Skaftadóttur stýrt Komið gott, einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, síðustu misserin.
Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að undir deildina falli samskiptateymi og greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar. „Markmið nýrrar deildar er að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans, bæði inn á við og út á við. Upplýsingamiðlun mun bera ábyrgð á samskiptum, almannatengslum, miðlun greininga og ytri fræðslu og styðja þannig við samræmda og skýra rödd Landsbankans í samfélagsumræðu. Á sviði Samskipta og menningar eru fyrir mannauðsmál, markaðsmál og rekstur fasteigna bankans. Una Jónsdóttir mun áfram stýra greiningardeild bankans. Vísir/Vilhelm Kristín hefur víðtæka reynslu af samskiptum á breiðum grunni. Hún hefur starfað á mörkum fyrirtækja og fjölmiðla og unnið náið með stjórnendum að mótun orðræðu og stefnumiðaðra samskipta. Undanfarin ár var hún markaðs- og samskiptastjóri hjá EFLU þar sem hún bar ábyrgð á innri og ytri samskiptum, leiddi teymi og sinnti stefnumótun, fjölmiðlasamskiptum og ritstjórnarlegri ábyrgð á ársskýrslu. Kristín hefur jafnframt starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta, ímyndarmála og opinberrar umræðu, auk þess að vera meðstjórnandi hlaðvarpsins Komið gott og álitsgjafi í fjölmiðlum. Kristín er með MA-gráðu í hönnun og sjónrænum samskiptum frá Universität der Künste í Berlín og stundar nú nám til MA-gráðu í Digital Innovation and Strategic Leadership við Hyper Island Stokkhólms/Teesside háskólann,“ segir í tilkynningunni.
Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Vistaskipti Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira