Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Árni Sæberg skrifar 19. febrúar 2026 12:57 Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi. Vísir/Vilhelm Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Honum var gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann segist þakklátur því að réttlætið hafi náð fram að ganga í málinu.
Líkt og Vísir greindi frá um miðjan janúar var Þorsteini Pétri gefið að sök að hafa, á hóteli á Suðurlandi, kysst brotaþola gegn hennar vilja. Hann hafi skömmu síðar hlaupið að henni, ýtt henni upp við vegg og sett tunguna upp í munn hennar. Þá hafi hann sett höndina inn fyrir nærbuxur konunnar og káfað á kynfærum hennar innanklæða. Sama dag og greint var frá ákærunni gaf Þorsteinn Pétur út yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu en sagðist myndu stíga til hliðar tímabundið sem forstjóri Deloitte. Hann hefur nú gefið út aðra yfirlýsingu þar sem segir að hann hafi treyst því að á endanum myndu staðreyndir tala sínu máli og sannleikurinn koma í ljós. „Nú í morgun féll dómur í málinu og var ég alfarið sýknaður af ákærunni og þessum tilhæfulausum ásökunum. Að vera sakaður um refsiverða háttsemi að ósekju er nokkuð sem á ekki að viðgangast en ég er þakklátur því að réttlætið náði fram að ganga. Ég vil þakka fjölskyldu minni, vinum og öllum þeim sem hafa sýnt mér stuðning á þessum erfiða tíma.“
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira