Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Árni Sæberg skrifar 19. febrúar 2026 16:40 Dómurinn féll í Landsrétti síðdegis. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar í Landsrétti fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega á stjúpdóttur sinni þegar hún var sjö og átta ára. Hann bar fyrir sig að hann væri haldinn kynferðislegri svefnröskun og hefði verið sofandi þegar hann braut á stúlkunni. Landsréttur taldi sannað að hann hefði verið vakandi þegar hann snerti kynfæri stúlkunnar og rass og fróaði sér við hlið hennar.
Í dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp klukkan 15, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni og brot í nánu sambandi, með því að hafa í fjölda skipta á þáverandi heimili þeirra áreitt stjúpdóttur sína kynferðislega, þar sem hún lá við hlið hans í rúmi, strokið yfir bak hennar og bringu innan klæða og strokið og snert kynfæri hennar og rass innan klæða og í hluta skiptanna fróað sér við hlið hennar, en með þessu hafi hann ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar, sem þá var sjö til átta ára gömul. Maðurinn hafi byggt sýknukröfu sína öðrum þræði á því að hann hefði verið sofandi þegar hann sýndi af sér háttsemina og að hann væri haldinn kynferðislegri djúpsvefnröskun (e. sexsomnia). Sérfræðingur taldi ólíklegt að hann hefði verið sofandi Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að dómurinn, sem skipaður væri sérfróðum meðdómsmanni, teldi matsgerð dómkvadds matsmanns, þar sem talið hafi verið afar ólíklegt að maðurinn hefði verið sofandi og ómeðvitaður um eigin gjörðir þegar atvik áttu sér stað, vel rökstudda og að í henni væri stuðst við nægar upplýsingum um svefnhegðun mannsins eftir að hann varð fullorðinn, auk svefnrannsóknar á honum. Jafnframt væri til þess að líta að lýsing á háttsemi mannsins í garð stúlkunnar benti eindregið til þess að hún ætti ekki rætur að rekja til kynferðislegrar svefnröskunar. Þótt hefði sannað, þannig að ekki yrði vefengt með skynsamlegum rökum, að maðurinn hefði verið vakandi og því meðvitaður um athafnir sínar þegar hann framdi umrædd brot. „Ojbarasta eitthvað“ Þá segir í dóminum að niðurstaða um sakfellingu væri meðal annars byggð á trúverðugri frásögn stúlkunnar um að maðurinn hefði „stundum klórað sér á typpinu eftir að hafa strokið henni og hann sett á bakið á henni „ojbarasta eitthvað“ sem lyktaði illa, eftir að hafa snert kynfæri hennar.“ Því þætti sannað að maðurinn hefði í einhverjum tilvikum fróað sér við hlið stúlkunnar. Ekki tilefni til að binda skilorði Við ákvörðun refsingar hefði verið litið til þess að brot mannsins voru endurtekin, framin af skýrum ásetningi og sérlega vítaverð, þar sem þau beindust að mikilvægum hagsmunum ungrar stjúpdóttur hans. Hann hefði með háttsemi sinni stefnt velferð og andlegu heilbrigði stúlkunnar í augljósa hættu. Refsing hans hefði hæfilega þótt ákveðin fangelsi í tólf mánuði og í ljósi alvarleika brota hans hefðu ekki þótt efni til að binda hana skilorði.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira