Bráðamóttakan megi ekki vera „forarpyttur sýkinga og hættu“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. febrúar 2026 07:40 Bráðalæknar mótmæla því að bráðamóttakan sitji ein uppi með vandann, til að vernda legudeildirnar. Vísir/Vilhelm Gunnarsson „Hvers vegna er álagi innan Landspítalans svona misskipt milli Bráðamóttöku og legudeilda Landspítala með tilheyrandi skaða fyrir sjúklinga og starfsfólk? Við viljum að Bráðamóttakan og hennar starf verði framvegis verndað, frekar en að hún sé gerð að forarpytti sýkinga og hættu.“
Þetta segir Félag bráðalækna í opnu bréfi til forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra sem birt var í gær, um stöðu mála á bráðamóttöku Landspítalans. Félagið talar um „innviðaskuld“ í búsetuúrræðum og aðhlynningu aldraða, sem valdi því að Landspítalinn sé iðulega með um hundrað sjúklinga á legudeildum sem hafa lokið meðferð en fá ekki pláss á hjúkrunarheimili. Heildarfjöldi aldraða sem þarfnast aðhlynningar en fá hana ekki sé að minnsta kosti 700. Bráðalæknar mótmæla rökum sem Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, setti fram í grein á dögunum og segjast óttast að viðhorf hans endurspegli skoðun ráðherra og misskilning á vanda bráðamóttökunnar. Þeir benda meðal annars á að rúmanýtingin á bráðamóttökunni sé oft langt yfir 150 prósent og að fjöldinn sem liggur þar inni jafngildi tveimur legudeildum. „Þetta leggur óhóflegt álag á hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og aðstoðarfólk bráðamóttöku, langt umfram það sem er á legudeildum spítalans,“ segir í yfirlýsingunni. Þau rök að ekki sé hægt að flytja sjúklinga á legudeildir án þess að mönnun fylgi eigi ekki síður við á bráðamóttökunni. Þá séu bráðalæknar hjartanlega sammála þeirri staðhæfingu að sjúklingar með sérhæfð og flókin vandamál þurfi að liggja á deild þar sem starfsfólk hefur viðeigandi menntun og reynslu. „Færa má rök fyrir því að sérmenntaður hjúkrunarfræðingur í meðferð einstaklinga með nýtt heilablóðfall sé betur til þess fallinn að sinna einum fleiri slíkum einstaklingi heldur en hjúkrunarfræðingur sérfróður um fyrstu meðferð og greiningu sem sinnir honum í langlegu sem þriðja eða fjórða umframsjúklingi á eftir öllum sínum bráðasjúklingum.“ Hvað varðar sýkingavarnir sinni starfsfólk bráðamóttöku sjúklingum með smitandi sjúkdóma við algjörlega óviðunandi aðstæður, með tilheyrandi áhættu fyrir eigin heilsu, heilsu sjúklinga og aðstandenda. „Nýlegar fréttir af starfsmönnum bráðamóttöku með jákvæð berklapróf undirstrika þetta og eru gríðarlegt áhyggjuefni. Hvort sem þessir starfsmenn fái smitandi berkla eða ekki þá liggur fyrir höndum löng fyrirbyggjandi meðferð hjá þeim og oft ótti og angist vegna eins alvarlegs sjúkdóms og berklar eru,“ segja bráðalæknar. Ef ekki megi leggja of mikið af sjúklingum inn á deildir eigi það ekki síður við á bráðamóttökunni. Bráðalæknar kalla eftir „menningarbreytingu“, þar sem legudeildir kalli til sín innlagða sjúklinga frekear en að bráðadeildin þurfi að „ýta þeim yfir“. „Til þess að þetta sé gerlegt þarf að opna strax hjúkrunarrými fyrir þá 100 einstaklinga sem hafa fengið færni- og heilsumat en liggja á deildum spítalans að bíða eftir nýju heimili. Til dæmis með því að opna deildir á lokuðum sjúkrahúsum eða hótelum. Svo þarf að byggja fyrir hina 600 sem enn eru heima hjá sér við illan leik. Aldraðir og hrumir eru þjóðfélagshópur sem á sér fáa málsvara. Það má benda hæstvirtum þingheimi á það að um þriðjungur þingheims muni þurfi á plássi á hjúkrunarheimili að halda innan 20 ára. Hvað þarf að gerast til að neyðarástandi sé lýst yfir og brugðist verði við? Við skorum á heilbrigðisyfirvöld að gera gangskör í þessum málum. Vandamálið sem við stöndum frammi fyrir í dag er skortur á framtíðarsýn og dugleysi heilbrigðisyfirvalda, fjármálaráðherra og annarra stjórnenda í heilbrigðiskerfinu síðastliðin 20 ár. Ekki bæta ykkar nöfnum á þann lista!“
Heilbrigðismál Landspítalinn Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Sjá meira