Noregur er bara betri áfangastaður! Bjarki Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2026 12:32 Flug er ein merkasta uppgötvun 20. aldar og hefur haft ótrúleg áhrif á hagkerfi og velsæld um allan heim. Rekstur flugfélaga og leiðarval hefur orðið sín eigin grein sem hefur mikil áhrif á viðskipti og framleiðslu í heiminum. Flug er svo þægilegt að það framkallar eftirspurn: Með betra aðgengi er hægt að búa til farþega sem hefðu annars ekki flogið og jafnvel ekki einu sinni íhugað áfangastaði flugsins. Ísland er mikið borið saman við Noreg sem áfangastaður en það gleymist oft í umræðunni hve vel Noregur er tengur innbyrðis með flugi. Með þetta í huga vil ég skoða hverju íslensk ferðaþjónusta er að missa af og nefna nokkra kosti þess að tengja alþjóðaflugvöllinn í Keflavík við flugvellina á landsbyggðinnimeð innanlandsflugstöð. Innanlandsflugstöð í Keflavík mun efla ferðaþjónustu. Eftir að hafa starfað í þeim bransa í nokkurn tíma heyrir maður aftur og aftur ferðamenn mæla með því að eyða sem minnstum tíma í Reykjavík. Fólk á að drífa sig að leigja bíl og beintút á land til að upplifa náttúruna. Aðal aðdráttarafl Íslands er einmitt óspillt náttúra og það því augljóslega nú þegar stór hópur sem myndi nýta sér þægilegar innanlandstengingar á heimsklassa áfangastaði líkt og Bíldudal eða Egilsstaði. Til dæmis, ef fólk vill sérstaklega skoða Austfirði. Við núverandi fyrirkomulag þarf það að gera ráð fyrir að minnsta kosti 4 dögum aukalega til þess að gista og keyra austur. Þessi auka tími og kostnaður letjar fólk. Ferðamenn með miklar tekjur en fáa frídaga kjósa væntanlega að fara frekar til landa eins og Noregsþar sem þau fá svipaða upplifun en geta flogið alla leið á sinn áfangastað. Með innanlandsflugi er líka mun auðveldara að dreifa ferðamönnum jafnar um landið og minnka álag sem myndast á Reykjavík sem fyrsta og síðasta stopp meirihluta þeirra tveggja milljóna ferðamanna sem heimsækja landið á ári.Innanlandsflugstöð í Keflavík myndi einnig lengja ferðatímabilið á ýmsum áfangastöðum eins og sunnanverðum Vestfjörðum. Leiðin suður lokast oft þegar einhver heiðanna þangað er ófær, en allt fært niðri í fjörðunum. Eftirspurnin eftir betra aðgengi að landsbyggðinni er einmitt nú þegar til staðar. Bæði EasyJet tengir Akureyri beint við sín kerfi allt árið um kring og Edelweiss á sumrin. Icelandair hefur vissulega boðið upp á tengingu milli Keflavíkur og Akureyrar, síðast haustið 2023, en þar var Icelandair að reyna að keppa við erlendu flugfélögin um farþega. Það er ansi augljóst þar sem flugin voru eingöngu í boði fyrir fólk sem keypti líka millilandaflug með Icelandair. Það var þannig séð verið að tengja áfangastaði Icelandair og Akureyrar með stoppi í Keflavík. Þetta útilokaði farþega annara flugfélaga og reyndi ekki á arðbærni flugleiðarinnar sjálfrarmilli Keflavíkur og Akureyrar. Innanlandsflug í Keflavík auðveldar auðvitað líka fólki búsettu um allt land að ferðast og sækja þjónustu eða viðskipti til útlanda. Við núverandi ástand er algengast að fólk út á landi sem vill fara erlendis aki alla leið til Keflavíkur. Vonandi með stoppi yfir nótt hjá ættingjum eða á gististað á höfuðborgarsvæðinu ef það býr fjær. Það mynstur fellur reyndar saman þegar við lítum á nýbúa sem eiga ekki ættingja eða vinafólk í bænum. Þá getur þetta orðið mjög hættulegt, dæmi eru um að fólk sem býr út á landi keyri beint heim eftir flug með hörmulegum afleiðingum. Til að mynda þegar pólsk fjölskylda búsett á Flateyri ók út í sjó við Skötufjörð janúar 2021 og tvö létust. Bílstjórinn var talinn hafa sofnað undir stýri eftir 15 tíma ferðalag. Til að útfæra almennilega tengingu milli Keflavíkur og landsbyggðarinnar þyrfti að reisa aðra flugstöð við Keflavíkurflugvöll. Fólk sem vill skipta yfir í innanlandsflug myndi þurfa að fara í gegnum tollinn og fara svo yfir á innanlandsflugstöðina. Þar væri ekki sérstök öryggisleit og þá væri hægt að fljúga beint frá þeirri flugstöð á smærri flugvelli eins og á Ísafirði, Vestmannaeyjum, Höfn eða Bíldudaleða þá stærri á Akureyri og Egilstöðum.Hægt að skoða að setja flugstöðina á svæðið þar sem gamla flugstöðin var. Gamla flugstöðin var rifinn 2017 og þá voru engar hugmyndir um að vera með innanlandsflug þar. Innanlandsflug í Keflavík á ekki að koma í staðinn fyrir flug til og frá Reykjavíkurflugvelli. Þessi hugmynd snýst alfarið um tengingu Keflavíkurflugvallar við gæði landsins, flugtengingar sem geta sjálfar staðið undir sér.Með framsýni, góðri markaðssetningu og samvinnu við bæjarfélögin er hægt að skapa markaði sem munu efla landið allt. Ég hvet yfirvöld og hagsmunaaðila eins og Samtök Ferðaþjónustunnar að skoða alvarlega innanlandsflug í Keflavík til þess að gefa ferðaþjónustu Íslands smá séns gagnvart Noregi. Höfundur er stærðfræðingur og áhugamaður um flug. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fréttir af flugi Ferðaþjónusta Mest lesið Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar