Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Björn Berg Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 07:01 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. Það þarf að vera gaman. Ég er hjartanlega ósammála móður vinar míns sem ég heyrði einu sinni segja við hann „lífið á ekki að vera skemmtilegt!“ Þú færð bara þessa einu umferð og þá er um að gera að hámarka gamanið. Með góðu skipulagi og niðurgreiðslu lána ertu að sennilega að auka möguleika þína og svigrúm til skemmtilegs lífs það sem eftir er. Það er þó mikilvægt að huga að því jafnvægi sem þú nefnir og því mjög gott að berir þessa spurningu upp. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu hér fyrir neðan. Hvers vegna ertu á réttri leið? Áður en við komum að jafnvæginu er ágætt að þú klappir þér aðeins á bakið vegna þess hvernig þú heldur á fjármálunum í dag. Þú heldur heimilisbókhald, hefur komð þér þaki yfir höfuðið og ert að greiða aukalega inn á lánið. Þetta gera aldeilis ekki allir og ég veit að það krefst aga, tíma og metnaðar. Þar sem hugurinn berst að frekari niðurgreiðslu lána þegar þú átt krónur aukalega hefur þú augljóslega áttað þig á ávinningi þess að greiða lán hratt niður. Á þessum vettvangi hefur áður verið rætt um slíkt og hefur þar verið farið yfir dæmi um kosti þess: Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Á ég að greiða inn á lán eða spara? Það er ekkert nema gott um þessa áherslu þína að segja. Hvar liggur jafnvægið? En hvar liggur umrætt jafnvægi? Hversu miklu ættir þú að verja í skemmtanir, sparnað og niðurgreiðslu lána? Í þessu eru margir skólar, en mín skoðun er sú að óvarlegt sé að herma eftir öðrum. Hlutfallsskiptingar, svo sem 50/30/20 reglan, gætu ýtt okkur af stað, en eru í raun hálfgerð rökleysa. Aðstæður fólks eru misjafnar, áherslur, fyrirætlanir og tækifæri. Þar sem þú ert þetta langt kominn og vel skipulagður legg ég til að þú útbúir þitt eigið plan og prófir eftirfarandi. Hvert er svigrúmið? Líttu á heimilisbókhaldið þitt eins og því er stillt upp í dag. Að því gefnu að verið sé að spara því sem nauðsynlegt er skaltu leggja saman núverandi greiðslubyrði lánsins þíns og þann afgang sem stefnir í um hver mánaðarmót. Færðu þá heildartölu inn sem fasta heildargreiðslu í lánareiknivél, svo sem þessa. Með því færðu skýra mynd af ávinningi þess að öll fjárhæðin sé lögð inn á lánið, svo sem hvenær það verður að fullu greitt upp. Hvað getur þú leyft þér, eða hvernig getur þú byggt upp fjárfestingar þegar þar að kemur? Notaðu sparnaðarreiknivél til að áætla slíkt. Með þessu gætir þú verið að búa þig undir verulegar fjárfestingar eða veruleg fjárútlát, bara ekki alveg strax. Er þetta þess virði? Lækkaðu nú heildarfjárhæðina um 50.000 kr. á mánuði, svo um 100.000 kr. á mánuði og sjáðu hverju munar á láninu. Auðvitað versna horfurnar þegar hægir á niðurgreiðslu lánsins, en gæti það samt sem áður verið þess virði? Nú reynir þú að svara þeirri spurningu. Skrifaðu niður á blað 10 hugmyndir að fjárútlátum, bæði mánaðarlegri eyðslu og stærri útgjöldum. Hvað væri skemmtilegast? Hvað myndi gleðja þig, bæta lífsgæði þín og senda þig bæði brosandi á koddann og ferskan á fætur? Settu verðmiða á þessi mögulegu fjárútlát og forgangsraðaðu þeim. Sjáðu svo hvernig þau passa inn í 50.000 kr. fjárheimild á mánuði eða 100.000 kr. Loks getur þú borið verðmæti þess sem þú færð fyrir eyðsluna saman við ávinninginn af því að greiða lánið hraðar niður. Það ætti að auðvelda þér að taka ákvörðun. Ekki hlusta á aðra Það á ekki að skipta þig neinu máli hvað öðrum finnst. Vegna þess hve skipulagður og metnaðarfullur þú virðist vera hef ég engar áhyggjur af þér, hvort sem þú kýst að leyfa þér aðeins meira eða halda þig við núverandi heimilisbókhald. Allt of margir verja peningunum sínum í að ganga í augun á öðrum, herma eftir fólki á samfélagsmiðlum eða jafnvel taka þátt í einhverju sem „þykir víst skemmtilegt“. Ef eitthvað gleður þig, passar inn í heilbrigt heimilisbókhald og hefur ekki neikvæð áhrif á framtíðarplönin þín sé ég ekkert athugavert við að þú sláir til. Fjármál heimilisins Fjármálin með Birni Berg Tengdar fréttir Hvernig bý ég mig undir barneignir? 27 ára kona spyr: „Hvernig er best að haga fjárhag í aðdraganda barnseigna? Ég á von á mínu fyrsta barni og vil bæði huga að því hvernig ég fjárfesti í framtíð barnsins t.d. á reikningi sem og hvað ég get gert sem verðandi foreldri sem undirbýr stækkandi fjölskyldu fyrir fjárhagslegar áskoranir sem fylgja barni.“ 2. desember 2025 07:01 Af hverju hefur lánið ekki lækkað? 40 ára kona spyr: Sæll vertu Björn. Nú keypti ég mér einbýlishús árið 2011, með 40 ára verðtryggðu láni, á 22,5 milljón. Lánið stendur í 21 milljón þrátt fyrir endalausar afborganir. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Getur þú sagt mér það? 4. nóvember 2025 07:03 Af hverju hefur lánið ekki lækkað? 40 ára kona spyr: Sæll vertu Björn. Nú keypti ég mér einbýlishús árið 2011, með 40 ára verðtryggðu láni, á 22,5 milljón. Lánið stendur í 21 milljón þrátt fyrir endalausar afborganir. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Getur þú sagt mér það? 4. nóvember 2025 07:03 Steypti ég mér í algjöra glötun með lántökunni fyrir þremur árum? 38 ára karl spyr: „Sæll. Kannski vegna þess að þú varst ekki byrjaður að skrifa þessa pistla fyrir 20 árum hef ég alltaf verið einstaklega „óheppinn“ í fjármálum og eignaðist ég því mína fyrstu íbúð fyrir tæpum þremur árum. Þá var bara verðtryggt í boði. Ef ég tek mark á umræðunni, sem ég geri lítið, þá er ég búinn að steypa mér í algjöra glötun. Er það svo eða get ég tekið einhver skynsamleg skref? Á ég að endurfjármagna umsvifalaust? Hvað þarf ég að hugsa um þegar ég geri það? Hjálp!“ 21. október 2025 07:03 Mest lesið „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira
Það þarf að vera gaman. Ég er hjartanlega ósammála móður vinar míns sem ég heyrði einu sinni segja við hann „lífið á ekki að vera skemmtilegt!“ Þú færð bara þessa einu umferð og þá er um að gera að hámarka gamanið. Með góðu skipulagi og niðurgreiðslu lána ertu að sennilega að auka möguleika þína og svigrúm til skemmtilegs lífs það sem eftir er. Það er þó mikilvægt að huga að því jafnvægi sem þú nefnir og því mjög gott að berir þessa spurningu upp. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu hér fyrir neðan. Hvers vegna ertu á réttri leið? Áður en við komum að jafnvæginu er ágætt að þú klappir þér aðeins á bakið vegna þess hvernig þú heldur á fjármálunum í dag. Þú heldur heimilisbókhald, hefur komð þér þaki yfir höfuðið og ert að greiða aukalega inn á lánið. Þetta gera aldeilis ekki allir og ég veit að það krefst aga, tíma og metnaðar. Þar sem hugurinn berst að frekari niðurgreiðslu lána þegar þú átt krónur aukalega hefur þú augljóslega áttað þig á ávinningi þess að greiða lán hratt niður. Á þessum vettvangi hefur áður verið rætt um slíkt og hefur þar verið farið yfir dæmi um kosti þess: Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Á ég að greiða inn á lán eða spara? Það er ekkert nema gott um þessa áherslu þína að segja. Hvar liggur jafnvægið? En hvar liggur umrætt jafnvægi? Hversu miklu ættir þú að verja í skemmtanir, sparnað og niðurgreiðslu lána? Í þessu eru margir skólar, en mín skoðun er sú að óvarlegt sé að herma eftir öðrum. Hlutfallsskiptingar, svo sem 50/30/20 reglan, gætu ýtt okkur af stað, en eru í raun hálfgerð rökleysa. Aðstæður fólks eru misjafnar, áherslur, fyrirætlanir og tækifæri. Þar sem þú ert þetta langt kominn og vel skipulagður legg ég til að þú útbúir þitt eigið plan og prófir eftirfarandi. Hvert er svigrúmið? Líttu á heimilisbókhaldið þitt eins og því er stillt upp í dag. Að því gefnu að verið sé að spara því sem nauðsynlegt er skaltu leggja saman núverandi greiðslubyrði lánsins þíns og þann afgang sem stefnir í um hver mánaðarmót. Færðu þá heildartölu inn sem fasta heildargreiðslu í lánareiknivél, svo sem þessa. Með því færðu skýra mynd af ávinningi þess að öll fjárhæðin sé lögð inn á lánið, svo sem hvenær það verður að fullu greitt upp. Hvað getur þú leyft þér, eða hvernig getur þú byggt upp fjárfestingar þegar þar að kemur? Notaðu sparnaðarreiknivél til að áætla slíkt. Með þessu gætir þú verið að búa þig undir verulegar fjárfestingar eða veruleg fjárútlát, bara ekki alveg strax. Er þetta þess virði? Lækkaðu nú heildarfjárhæðina um 50.000 kr. á mánuði, svo um 100.000 kr. á mánuði og sjáðu hverju munar á láninu. Auðvitað versna horfurnar þegar hægir á niðurgreiðslu lánsins, en gæti það samt sem áður verið þess virði? Nú reynir þú að svara þeirri spurningu. Skrifaðu niður á blað 10 hugmyndir að fjárútlátum, bæði mánaðarlegri eyðslu og stærri útgjöldum. Hvað væri skemmtilegast? Hvað myndi gleðja þig, bæta lífsgæði þín og senda þig bæði brosandi á koddann og ferskan á fætur? Settu verðmiða á þessi mögulegu fjárútlát og forgangsraðaðu þeim. Sjáðu svo hvernig þau passa inn í 50.000 kr. fjárheimild á mánuði eða 100.000 kr. Loks getur þú borið verðmæti þess sem þú færð fyrir eyðsluna saman við ávinninginn af því að greiða lánið hraðar niður. Það ætti að auðvelda þér að taka ákvörðun. Ekki hlusta á aðra Það á ekki að skipta þig neinu máli hvað öðrum finnst. Vegna þess hve skipulagður og metnaðarfullur þú virðist vera hef ég engar áhyggjur af þér, hvort sem þú kýst að leyfa þér aðeins meira eða halda þig við núverandi heimilisbókhald. Allt of margir verja peningunum sínum í að ganga í augun á öðrum, herma eftir fólki á samfélagsmiðlum eða jafnvel taka þátt í einhverju sem „þykir víst skemmtilegt“. Ef eitthvað gleður þig, passar inn í heilbrigt heimilisbókhald og hefur ekki neikvæð áhrif á framtíðarplönin þín sé ég ekkert athugavert við að þú sláir til.
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu hér fyrir neðan.
Fjármál heimilisins Fjármálin með Birni Berg Tengdar fréttir Hvernig bý ég mig undir barneignir? 27 ára kona spyr: „Hvernig er best að haga fjárhag í aðdraganda barnseigna? Ég á von á mínu fyrsta barni og vil bæði huga að því hvernig ég fjárfesti í framtíð barnsins t.d. á reikningi sem og hvað ég get gert sem verðandi foreldri sem undirbýr stækkandi fjölskyldu fyrir fjárhagslegar áskoranir sem fylgja barni.“ 2. desember 2025 07:01 Af hverju hefur lánið ekki lækkað? 40 ára kona spyr: Sæll vertu Björn. Nú keypti ég mér einbýlishús árið 2011, með 40 ára verðtryggðu láni, á 22,5 milljón. Lánið stendur í 21 milljón þrátt fyrir endalausar afborganir. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Getur þú sagt mér það? 4. nóvember 2025 07:03 Af hverju hefur lánið ekki lækkað? 40 ára kona spyr: Sæll vertu Björn. Nú keypti ég mér einbýlishús árið 2011, með 40 ára verðtryggðu láni, á 22,5 milljón. Lánið stendur í 21 milljón þrátt fyrir endalausar afborganir. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Getur þú sagt mér það? 4. nóvember 2025 07:03 Steypti ég mér í algjöra glötun með lántökunni fyrir þremur árum? 38 ára karl spyr: „Sæll. Kannski vegna þess að þú varst ekki byrjaður að skrifa þessa pistla fyrir 20 árum hef ég alltaf verið einstaklega „óheppinn“ í fjármálum og eignaðist ég því mína fyrstu íbúð fyrir tæpum þremur árum. Þá var bara verðtryggt í boði. Ef ég tek mark á umræðunni, sem ég geri lítið, þá er ég búinn að steypa mér í algjöra glötun. Er það svo eða get ég tekið einhver skynsamleg skref? Á ég að endurfjármagna umsvifalaust? Hvað þarf ég að hugsa um þegar ég geri það? Hjálp!“ 21. október 2025 07:03 Mest lesið „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira
Hvernig bý ég mig undir barneignir? 27 ára kona spyr: „Hvernig er best að haga fjárhag í aðdraganda barnseigna? Ég á von á mínu fyrsta barni og vil bæði huga að því hvernig ég fjárfesti í framtíð barnsins t.d. á reikningi sem og hvað ég get gert sem verðandi foreldri sem undirbýr stækkandi fjölskyldu fyrir fjárhagslegar áskoranir sem fylgja barni.“ 2. desember 2025 07:01
Af hverju hefur lánið ekki lækkað? 40 ára kona spyr: Sæll vertu Björn. Nú keypti ég mér einbýlishús árið 2011, með 40 ára verðtryggðu láni, á 22,5 milljón. Lánið stendur í 21 milljón þrátt fyrir endalausar afborganir. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Getur þú sagt mér það? 4. nóvember 2025 07:03
Af hverju hefur lánið ekki lækkað? 40 ára kona spyr: Sæll vertu Björn. Nú keypti ég mér einbýlishús árið 2011, með 40 ára verðtryggðu láni, á 22,5 milljón. Lánið stendur í 21 milljón þrátt fyrir endalausar afborganir. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Getur þú sagt mér það? 4. nóvember 2025 07:03
Steypti ég mér í algjöra glötun með lántökunni fyrir þremur árum? 38 ára karl spyr: „Sæll. Kannski vegna þess að þú varst ekki byrjaður að skrifa þessa pistla fyrir 20 árum hef ég alltaf verið einstaklega „óheppinn“ í fjármálum og eignaðist ég því mína fyrstu íbúð fyrir tæpum þremur árum. Þá var bara verðtryggt í boði. Ef ég tek mark á umræðunni, sem ég geri lítið, þá er ég búinn að steypa mér í algjöra glötun. Er það svo eða get ég tekið einhver skynsamleg skref? Á ég að endurfjármagna umsvifalaust? Hvað þarf ég að hugsa um þegar ég geri það? Hjálp!“ 21. október 2025 07:03