Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Kjartan Kjartansson skrifar 20. febrúar 2026 15:08 Niðurstaða Hæstaréttar Bandaríkjanna er áfall fyrir Donald Trump. Myndin er úr safni. EPA Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir.
Niðurstaðan er meiriháttar áfall fyrir Trump en hann hefur beitt tollum, og hótunum um að beita ríki þeim, í gríð og erg frá því að hann tók aftur við sem forseti í fyrra. Margir tollanna byggðust á ákvæðum laga um valdheimildir forseta í efnahagsneyð. Sex af níu dómurum við hæstarétt töldu Trump ekki mega beita lögunum til þess að leggja tollana á. Á meðal þeirra tolla sem hæstiréttur telur ólöglega eru svonefndir „gagnkvæmir“ tollar Bandaríkjastjórnar á önnur ríki, þar á meðal Ísland. Trump tilkynnti um þá í apríl en hefur ítrekað krukkað í þeim og hótað frekari tollum síðan. Einnig eru tollar sem Trump lagði á Kanada, Kína og Mexíkó vegna meints aðgerðaleysis þeirra gegn innflutningi á fentanýli til Bandaríkjanna dæmdir ólöglegir. Þetta á ekki við um tolla sem Trump lagði á innflutt stál og ál en þeir studdust við önnur lagaákvæði. Þrír íhaldsmenn á öðru máli Niðurstaðan kemur að ýmsu leyti á óvart þar sem dómarar sem voru skipaðir af repúblikönum eru í afgerandi meirihluta í réttinum. Hann hefur fram að þessu gefið Trump verulegt svigrúm til athafna sem sést ekki hvað síst í að dómurinn leyfði tollunum að standa í nærri því ár á meðan málið velktist um fyrir dómstólum þrátt fyrir að hann hafi nú komist að því að þeir væru skýrt brot á stjórnarskrá. Þrír íhaldssömu dómaranna, þar á meðal forsetinn John Roberts, stóðu að meirihlutaálitinu ásamt frjálslyndu dómurunum þremur. Íhaldsmennirnir Brett Kavanaugh, Samuel Alito og Clarence Thomas voru á öðru máli. Þeir tveir síðastnefndu eru taldir mestu íhaldsmennirnir við réttinn. Niðurstaða meirihlutans var að stjórnarskrá Bandaríkjanna væri skýr um að það væri þingsins, ekki framkvæmdavaldsins, að leggja á tolla. Neyðarlögin sem Trump beitti fyrir sig fjalla ekki beint um tolla heldur veita forseta tæki til þess að setja reglur um inn- og útflutning á neyðartímum. Enginn forseti í sögu Bandaríkjanna hafði beitt þeim til þess að leggja á tolla með þessum hætti áður en Trump gerði það. AP-fréttastofan segir að verslunarrisar eins og Costco bíði nú í röðum eftir að krefja alríkisstjórnina um endurgreiðslu á milljörðum dollara í tolla sem hún hefur þegar innheimt ólöglega. Trump hefur ítrekað haldið því fram að erlend ríki greiði tollana þó að það sé í reynd bandarísk innflutningsfyrirtæki og á endanum neytendur sem bera kostnaðinn við þá. Fréttin verður uppfærð.
Donald Trump Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira