Að kasta krónunni fyrir aurinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 07:45 Í gær bárust þær fréttir að ríkisstjórnin hafi ákveðið að hætta að styðja við auka sumarverkefni styrktarfélagsins Gló. Með þeirri ákvörðun falla niður annars vegar ævintýrabúðir í Reykjadal fyrir börn og unglinga með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu eða andlegum áskorunum og hins vegar vinahópar Reykjadals sem er sumardvöl og tómstundaúrræði fyrir fatlað ungt fólk á aldrinum 20–30 ára. Þetta eru sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni sem oft stendur ekki annað til boða. Fyrrum mennta- og barnamálaráðherra Framsóknar, Ásmundur Einar Daðason, lagði áherslu á að styrkja sumarstarfið og auka þjónustu við þennan hóp og þegar verkefnið hófst kom í ljós mikil og brýn þörf á sumarstarfinu. Það eitt ætti að vera skýr vísbending um að mikilvægt er að halda áfram að stuðningi. Að kasta krónunni fyrir aurinn Að kasta krónunni fyrir aurinn er skammgóður vermir í ríkisrekstri. Niðurskurður á úrræðum sem styrkja félagslega þátttöku og andlega líðan barna og ungs fólks kann að virðast sparnaður til skemmri tíma, en reynslan sýnir að slíkar ákvarðanir geta leitt til aukins kostnaðar síðar. Skortur á stuðningi og virkni barna- og ungmenna eykur líkurnar á félagslegri einangrun, verri andlegri heilsu og til langs tíma litið aukinni þjónustuþörf í velferðar- og heilbrigðiskerfinu. Grunnþörf hvers einstaklings er að tilheyra og þessi sumarverkefni hafa veitt börnum og ungmennum í viðkvæmri stöðu einmitt það. Fjölskyldur treysta einnig á þessi úrræði fyrir börnin sín. Þegar hefðbundið skóla- og frístundastarf liggur niðri yfir sumarið getur myndast tómarúm í þjónustu og stuðningi, og þá skipta svona verkefni gríðarlegu máli fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Samfélag fyrir alla Börn og ungmenni með fjölþættar stuðningsþarfir eiga oft erfitt með að taka þátt í hefðbundnu sumarstarfi. Tækifæri til að taka þátt í skipulögðu starfi og mynda tengsl eru lykilatriði í að byggja upp sjálfsmynd, færni og farsæld einstaklinga. Ef við meinum það þegar við segjum að við viljum samfélag fyrir alla, þá verður forgangsröðun fjármuna að endurspegla það. Ísland hefur lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem kveður skýrt á um rétt til þátttöku, jafnræðis og aðgengis að samfélaginu. Að draga úr úrræðum sem gera börnum og ungu fólki kleift að taka virkan þátt í félagslífi gengur gegn markmið samningsins og er til marks um ranga forgangsröðun. Ég hvet ríkisstjórnina til að styðja áfram við sumarverkefnin! Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Skoðun Skoðun Þau læra það börnin sem fyrir þeim er haft Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Sjá meira
Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar