Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Lovísa Arnardóttir skrifar 25. febrúar 2026 08:46 Ráðherrar ríkisstjórnarinnar á fundi. Vísir/Vilhelm Sjö stjórnmálasamtök hafa fengið samtals greiddar samtals 605 milljónir króna úr ríkissjóði fyrir árið 2026. Samfylkingin fær hæsta framlagið, 130 milljónir, og Sósíalistaflokkurinn lægsta framlagið, 22,5 milljónir.
Ríkisstjórnarflokkarnir fá samanlagt um 322 milljónir eða um helming framlagsins. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn eða hlotið að lágmarki 2,5 prósent atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum eiga rétt á framlagi úr ríkissjóði. Sósíalistaflokkurinn er eini flokkurinn sem fékk styrk en á ekki mann á þingi samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins en Píratar voru þó í sömu stöðu. Sósíalistaflokkurinn fékk fjögurra prósenta fylgi í kosningunum í nóvember 2024 og fékk greiddar um 22 milljónir. Píratar fengu þriggja prósenta fylgi og engan mann á þing. Samkvæmt upplýsingum frá Oktavíu Hrund Guðrúnar Jóns, formanni Pírata, eiga þau eftir að fá sinn styrk en þau voru ekki búin að skila öllum tilskildum gögnum þegar úthlutun fór fram. Samkvæmt fjármála- og efnahagsráðuneytinu var flokkurinn ekki búinn að uppfylla upplýsingaskyldu sína gagnvart Ríkisendurskoðun varðandi ársreikning. Ríkisendurskoðun þarf svo að birta ársreikninginn. Framlögin í ár. Stjórnarráðið Tólf milljónir í lágmark Í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka er að finna reglur um framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi. Þar kemur fram að stjórnmálasamtök sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn á þing eigi rétt á 12 milljóna króna grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju. Þá fái stjórnmálasamtök sem fengið hafa að minnsta kosti einn mann kjörinn eða hlotið hafa að lágmarki 2,5 prósent atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun í fjárlögum hverju sinni. Skilyrði fyrir úthlutun á fé úr ríkissjóði, sem og frá sveitarstjórnum, er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð á stjórnmálasamtakaskrá og að þau hafi uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda og að ársreikningur þeirra hafi verið birtur. Endurskoðað verklag Í tilkynningu stjórnarráðsins um úthlutunina segir að fjármála- og efnahagsráðuneytið hafi farið yfir ferla við greiðslu til stjórnmálasamtaka og gerði viðeigandi úrbætur í kjölfar þess að ábendingar bárust í ársbyrjun 2025 um að framlög hefðu verið greidd árið 2022 án þess að skilyrði um skráningu í stjórnmálasamtakaskrá hefði verið könnuð. Flokkur fólksins fékk synjun á framlagi í fyrra vegna þess að flokkurinn var ekki skráður sem stjórnmálaflokkur. Því var svo breytt síðar á aðalfundi flokksins og hann fékk framlagið svo greitt. Alls fékk flokkurinn 240 milljónir greiddar án þess að vera skráður sem stjórnmálaflokkur og Vinstri græn 207 milljónir. Fjallað var ítarlega um málið á síðasta ári og það til umræðu hvort flokkarnir ættu að endurgreiða styrkina. Ekki kom þó til þess. Í tilkynningu stjórnarráðsins segir að óskað hafi verið eftir mati Ríkisendurskoðunar á þeim breytingum sem gerðar voru og í febrúar hafi Ríkisendurskoðun birt niðurstöðu um að uppfært verklag ráðuneytisins styrki framkvæmd laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og tryggi að skilyrðum fyrir greiðslum úr ríkissjóði sé fylgt. Í mati Ríkisendurskoðunar kemur fram að verklagið hafi verið skýrt nánar og bætt þannig að betur sé tryggt að lagaskilyrðum sé fullnægt áður en greiðslur fari fram. Þá er bent á að kanna megi hvort einfaldara og skilvirkara sé að færa umsjón og framkvæmd greiðslna til eins aðila, til dæmis Fjársýslunnar. Einnig er hvatt til þess að umsóknarferill verði formfestur frekar, meðal annars með rafrænu umsóknarkerfi.
Alþingiskosningar 2024 Alþingi Styrkir til stjórnmálasamtaka Viðreisn Samfylkingin Sósíalistaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Flokkur fólksins Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Píratar Tengdar fréttir Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Eigið fé Vinstri grænna nam um fimmtíu milljónum króna við lok síðasta árs þrátt fyrir taprekstur á kosningaári. Flokkurinn varði rúmum 26,6 milljónum króna í kosningabaráttu sem skilaði honum engu. 29. desember 2025 09:41 Töpuðu tæpum hundrað milljónum Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tæpum hundrað milljónum króna árið 2024. Framlög lögaðila til flokksins voru tugir milljóna króna en kostnaðurinn við Alþingiskosningarnar var rúmlega 170 milljónir króna. 25. desember 2025 15:13 Skiluðu hagnaði á kosningaári Framsóknarflokkurinn skilaði tæpum áttatíu milljón krónum í hagnað árið 2024. Ársreikningur þeirra fyrir árið hefur verið samþykktur og birtur á vef Ríkisendurskoðunar. 24. desember 2025 14:27 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Eigið fé Vinstri grænna nam um fimmtíu milljónum króna við lok síðasta árs þrátt fyrir taprekstur á kosningaári. Flokkurinn varði rúmum 26,6 milljónum króna í kosningabaráttu sem skilaði honum engu. 29. desember 2025 09:41
Töpuðu tæpum hundrað milljónum Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tæpum hundrað milljónum króna árið 2024. Framlög lögaðila til flokksins voru tugir milljóna króna en kostnaðurinn við Alþingiskosningarnar var rúmlega 170 milljónir króna. 25. desember 2025 15:13
Skiluðu hagnaði á kosningaári Framsóknarflokkurinn skilaði tæpum áttatíu milljón krónum í hagnað árið 2024. Ársreikningur þeirra fyrir árið hefur verið samþykktur og birtur á vef Ríkisendurskoðunar. 24. desember 2025 14:27