Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. febrúar 2026 14:01 Crispin Glover hafnar ásökunum breskrar fyrirsætur sem segir hann hafa narrað hana til Los Angeles undir fölsku yfirskyni og síðan reynt að stjórnast með hana áður en hann henti henni á götuna. Getty Hollywood-leikarinn Crispin Glover hefur verið sakaður um líkamsárás, andlegt ofbeldi, ólögmætan útburð og málshöfðun að ófyrirsynju af breskri fyrirsætu. Glover hafnar ásökununum, segir konuna hafa brotist inn til hans og ráðist á hann þannig hann hringdi á lögregluna og óskaði eftir nálgunarbanni á hendur konunni.
Fjölmiðlar vestanhafs greina frá stefnunni sem er lögð fram í Kaliforníuríki. Ásakanir konunnar, sem nýtur nafnleysis sem Jane Doe, byggjast á því sem er lýst sem „óhugnanlegri röð atvika þar sem Jane Doe var í grunninn haldið fanginni og notuð af Herra Glover fyrir kynlíf og ókeypis vinnu undir fölsku yfirskini“. Talsmaður Glover hafnaði ásökununum og sagði þær tilhæfulausar í yfirlýsingu til götumiðilsins TMZ. Glover er 61 árs gamall og þekktastur fyrir að leika undarlega menn, helstu hlutverk hans eru George McFly í fyrstu tveimur Back to the Future-myndunum, mjói maðurinn í Charlie's Angels (2000), Grendel í Beowulf (2007) og hjartagosinn í Alice in Wonderland (2010). Þá kom hann til Íslands árið 2011 með leiksýningu sína. Hafi átt að þjóna honum sem „kynlífsþræll“ Konunni er lýst sem fyrirsætu frá Bretlandseyjum í stefnunni og segist hún hafa kynnst Glover á samfélagsmiðlum árið 2015. Leikarinn hafi reynt „undarlega“ við hana og sent henni skilaboð þar sem hann bað hana um að flytja til Los Angeles. Þá heldur hún því fram að þau hafi fyrst kynnst í persónu átta árum síðar í Dresden í Þýskalandi þar sem hún segir hann hafa „sýnt nokkra hluti úr nasistaminjasafni sínu“. Konan segir Glover hafa markvisst tælt hana með „loforðum um nýtt líf þar sem hún gæti byrjað upp á nýtt og öðlast feril í skemmtanabransanum gegnum viðskiptasamband við hann“. Jafnframt heldur konan því fram að Glover hafi lofað henni heimili og vinnu ef hún flytti til Los Angeles til að vinna sem aðstoðarkona hans árið 2024. Crispin Glover hefur leikið í tugum kvikmynda.Getty Þegar hún kom til Los Angeles hafi hún „fundið sig í óhugnanlegum aðstæðum þar sem herra Glover vildi stjórna allri hegðun hennar og fylgjast með ferðum hennar og þjóna honum sem kærasta/kynlífsþræll“. Hún hafi þurft að treysta algjörlega á loforð Glover um pening og heimili. Hún heldur því síðan fram að í mars 2024 hafi hún yfirgefið heimili þeirra til að fara í mosku og þá hafi Glover læst hana úti. Þegar hún sneri aftur hafi hann beðið hana um að finna sér nýjan íverustað „án aðvörunar eða fyrirvara“. Hún hafi í kjölfarið reynt að komast inn á heimilið til að endurheimta eigur sínar og ketti. Glover hafi þá „ráðist á hana, gripið um háls hennar og kyrkt hana með haustaki sem skildi eftir sig sár og ör á hálsi hennar“. Þá sakar konan Glover um að skrá „falska lögregluskýrslu“ gegn henni þar sem hún er sögð boðflenna sem hafi brotist inn á heimilið. Hann hafi sótt um nálgunarbann gegn henni og þannig valdið orðstír hennar „varanlegum skaða“. Þrátt fyrir það hafi hann haldið áfram að hafa samband við hana og „áreitt“ til að falast eftir kynlífi. Konan hafi ekki verið íbúi heldur boðflenna Talsmaður Glover sendi frá sér yfirlýsingu eftir að kæran varð opinber og hafnaði ásökunum konunnar algjörlega. „Raunveruleikinn er sá að 2. mars 2024 var herra Glover fórnarlamb tilhæfulausrar líkamsárásar Jane Doe á heimili hans í Los Angeles. Herra Glover hringdi í lögreluna sem komu á vettvang, rannsökuðu málið og handtóku hana,“ segir í yfirlýsingunni. „Þessar staðreyndir eru skrásettar í lögregluskjölum og í nálgunarbanninu sem Herra Glover höfðaði gegn Jane Doe á þeim tíma,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Konan heldur því á móti fram að nálgunarbannið hafi verið „illkvittið“ og „sviksamlegt“ og það verið fellt niður. „Herra Glover hyggst verja sjálfan sig kröftuglega og leita allra lausna við það. Hann er öruggur um að dómsmeðferðin muni afhjúpa stefnuna sem gildislausan tilbúning,“ segir að lokum í tilkynningunni.
Bandaríkin Kynbundið ofbeldi Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira