Háskólinn lagði stúdenta Árni Sæberg skrifar 26. febrúar 2026 11:09 Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Vísir/Sigurjón Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur hafnað kröfu fyrrverandi nemanda um endurgreiðslu skráningargjalda, á þeim grundvelli að þau væru byggð á sandi.
Þetta kemur fram í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar, sem kveðinn var upp í nóvember en birtur í gær, í máli stúdentsins fyrrverandi Jessýjar Jónsdóttur, sem óskaði eftir því árið 2022 við Háskólaráð að henni yrðu endurgreidd skráningargjöldin fyrir árið 2022. Ráðið hafnaði beiðni hennar og hún kærði ákvörðun þess til Áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema, með fulltingi SHÍ. Fögnuðu sigri of snemma SHÍ blés til blaðamannafundar í október árið 2023 þar sem því var lýst yfir að stúdentar hefðu farið með sigur af hólmi fyrir áfrýjunarnefndinni. Nefndin hefði úrskurðað skráningargjöldin ólögmæt. Það reyndist ekki alveg rétt þar sem í úrskurði nefndarinnar var ákvörðun Háskólaráðs ógilt en þess krafist að HÍ legði fram útreikninga á því hvernig skráningargjöldunum væri varið. Með öðrum orðum hvort þau væru skráningargjöld eða skólagjöld. „Af umfjöllun fjölmiðla um málið má ráða að nokkurs misskilnings gæti um niðurstöðu nefndarinnar. Jafnvel hefur komið fram að nefndin hafi kveðið á um að enginn grundvöllur væri fyrir innheimtu skrásetningargjalds en slíkt er alls ekki rétt. Í niðurstöðu nefndarinnar kemur einfaldlega fram að útreikningar vissra kostnaðarliða sem felldir hafa verið undir gjaldið séu ekki fullnægjandi,“ sagði í yfirlýsingu Jóns Atla Benediktssonar, þáverandi rektors, á sínum tíma. Gjaldið byggi á traustum útreikningum Í niðurstöðukafla úrskurðarins segir að Jessý hafi byggt á því að forsendur og útreikningur á einstaka liðum að baki skrásetningargjaldinu hafi ekki legið fyrir við álagningu þess gjalds. Í málinu liggi fyrir að HÍ hafi ekki tekið saman eða reiknað út raunkostnað með reglulegum hætti. HÍ hafi vísað að því er þetta varðar meðal annars til þess að þar sem augljóst sé að raunkostnaður við þjónustu við nemendur sé umfram lögákveðna hámarksfjárhæð skrásetningagjaldsins verði ekki gerðar sömu kröfur um reglulegan samanburð rauntalna við áætlun nema grundvallarbreytingar verði á forsendum. Fyrir liggi að svo sé ekki. Nefndin taki undir þetta sjónarmið HÍ. Í málatilbúnaði HÍ komi fram að rauntölur afmarkaðra kostnaðarliða í viðauka B séu ávallt tiltækar í bókhaldi HÍ og unnt að taka þær saman. Í kjölfar fyrri úrskurðar nefndarinnar hafi HÍ farið í rannsókn og greiningu á kostnaðarliðum sem liggja að baki töluliðum í viðauka B. Niðurstaða þeirrar rannsóknar sýni að mati nefndarinnar fram á það að raunkostnaður vegna þjónustu við nemendur sem skrásetningargjaldinu er ætlað að mæta sé hærri en fjárhæð skrásetningargjaldsins. Eins og rakið sé í fyrri úrskurði nefndarinnar þá sé helsta forsenda þess að hægt sé að taka afstöðu til þess hvort að skrásetningargjald HÍ uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til álagningar þjónustugjalda sú að fyrir liggi á hvaða forsendum gjaldið byggir. Í máli þessu liggi fyrir ítarleg áætlun og greining á því hverju sú áætlun byggi, ólíkt því sem var í fyrra máli. Í málatilbúnaði Jessýjar sé vísað til þess að ekki sé hægt að ráðast í slíka rannsókn eftir á. Gögnin lágu fyrir og aðeins þurfti að taka þau saman Nefndin telji að það hafi verið skylda HÍ með hliðsjón af rannsóknarreglu stjórnarsýslulaga að fara í slíka rannsókn í kjölfar niðurstöðu nefndarinnar í fyrra máli. Þessar tölur og upplýsingar hafi legið fyrir í kerfum skólans og sú vinna sem fram fór í kjölfarið hafi einungis verið til þess að taka saman þessar upplýsingar á grunni aðferðarfræði sem HÍ hafi útskýrt með ítarlegum hætti í málinu og sem útlistuð sé í viðauka B. „Eins og rakið var í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 4/2022 er áskilið að innheimta skráningargjalds vegna þjónustu við nemendur taki mið af þeim kostnaði sem til falli vegna veitingu þjónustunnar og að afmörkun skrásetningargjaldsins byggi á traustum útreikningum. Að mati nefndarinnar eru þessi skilyrði uppfyllt.“ Reglurnar birtar með réttum hætti og skólinn hafði heimild Að því er varðar málatilbúnað Jessýjar að reglur um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds hafi ekki verið settar með réttum hætti þá liggi fyrir í málinu að þær hafi verið samþykktar af háskólaráði á fundi 6. apríl 2014 og birtar í B-deild Stjórnartíðinda. Viðaukar við reglurnar sem séu til nánari skýringar og útlistunar hafi verið samþykktir á sama fundi, þar með talið viðauki B, og hafi þeir verið birtir og aðgengilegir á heimasíðu skólans frá samþykki. Með hliðsjón af framangreindu fallist nefndin ekki á málsástæður kæranda að reglurnar hafi ekki verið birtar með réttum hætti. Að því er varðar málsástæður Jessýjar um heimildir HÍ til gjaldtöku af nemendum með innheimtu skrásetningargjald þá vísi nefndin til fyrri úrskurðar þar sem ítarlega sé rakin saga heimilda HÍ til gjaldtöku og fyrirkomulags skrásetningagjalda við skólann, en nefndin hafi þar komist að þeirri niðurstöðu að HÍ hafi heimild til þess að innheimta skrásetningargjald af nemendum við skólann. Með hliðsjón af því telji nefndin ekki efni til að fjalla frekar um þær málsástæður kæranda sem snúa að því hvort HÍ sé heimilt að innheimta skrásetningargjald af nemendum við skólann. „Með vísan til framangreinds er það niðurstaða áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema að hafna kröfum kæranda um endurgreiðslu skrásetningargjalds vegna innritunar kæranda í HÍ fyrir skólaárið 2021-2022.“ Úrskurðurinn rýr Í samtali við Vísi segist Jessý vilja árétta að málið sé til meðferðar hjá Umboðsmanni Alþingis og að hennar mati sér úrskurður nefndarinnar rýr á beinunum efnislega. Hann hafi verið rúmt ár í smíðum þrátt fyrir að svara sjónarmiðum hennar ekki efnislega, inntak hans sé nánast einungis rakning atburarrásarinnar. „Því tel ég að það eigi enn eftir að reyna almennilega á kvörtunina.“ Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum Jessýjar.
Háskólar Úrskurðar- og kærunefndir Hagsmunir stúdenta Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira