Borgaði meira en 28 milljónir króna fyrir Ólympíugallann hennar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 08:32 Það voru boðnar stórar upphæðir í keppnisbúning Juttu Leerdam frá Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Getty/Dean Mouhtaropoulos Ólympíukeppnisgalli hollenska Ólympíumeistarans Juttu Leerdam seldist á meira en 230 þúsund dollara á æsispennandi netuppboði um helgina.
Hollenska skautakonan klæddist gallanum þegar hún vann gull í 1.000 metra skautahlaupi og silfur í 500 metra skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortinu. Jutta Leerdam’s Olympic suit sells for record €195,000, most goes to her youth club https://t.co/zB5dIu1gOr— NL Times (@NL_Times) March 1, 2026 Gallinn fór á uppboð eftir að hún lauk keppni á Vetrarólympíuleikunum 2026 en boð stóðu yfir í viku. Áritaður af Leerdam Þegar hamrinum var slegið í borðið á laugardagsmorgun greiddi einn bjóðandi 230.441 Bandaríkjadali fyrir keppnisgallann, sem er áritaður af Leerdam og hafði verið til sýnis í Staatsloterij Team NL House í Mílanó á meðan leikunum stóð. Það jafngildir meira en 28 milljónum í íslenskum krónum. Boðin höfðu staðið í um tíu þúsund dölum í nokkra daga þar til fresturinn rann út klukkan níu á laugardagsmorgun, en þá sprakk allt. Á örfáum mínútum urðu tveir keppinautar til þess að verðið skaust upp í sex stafa tölu áður en það náði lokaupphæðinni. Sló í gegn Hin 27 ára gamla skautastjarna sló í gegn á Vetrarólympíuleikunum 2026 þegar hún vann sitt fyrsta Ólympíugull á ferlinum en Leerdam vakti enn meiri athygli þegar hún renndi niður rennilásnum á gallanum sínum og sýndi Nike-íþróttatopp eftir að hafa unnið Leerdam, sem er trúlofuð YouTube-stjörnunni og hnefaleikakappanum Jake Paul, gæti að sögn hafa þénað meira en eina milljón dala, 122 milljónir króna, fyrir þennan fögnuð eftir að Nike birti mynd af hinni tilfinningaþrungnu hollensku konu á Instagram-síðu sinni. Einn af nokkrum minjagripum Appelsínuguli gallinn var einn af nokkrum minjagripum sem hollenska kvennaliðið í skautahlaupi hafði boðið upp á. Einnig voru boðnir upp á Match Worn Shirts-síðunni gallar sem aðrir verðlaunahafar, Femke Kok, Antoinette Rijpma-De-Jong og Merel Conjin, klæddust. Jutta Leerdam’s Olympic race suit from viral sports-bra flash sells for more than $230Gs in frenzied auction, from @danbilickihttps://t.co/vdUuJiAZmF pic.twitter.com/eUkhl7fIOO— Toronto Sun (@TheTorontoSun) February 28, 2026 Galli Leerdam seldist þó fyrir mun meira en gallar liðsfélaga hennar, en næstdýrasti hluturinn í hópnum voru leggingsbuxur Kok sem seldust á 5.675 dali eða 692 þúsund íslenskar krónur. Áritað ennisband Leerdam var einnig boðið upp og seldist á væna summu, 1.797 dali eða 241 þúsund krónur. Íþróttamennirnir sjálfir fá ekkert í sinn vasa af uppboðunum, en ágóðinn rennur til þeirra félaga þar sem þau hófu feril sinn. Á fimmtudaginn birti Leerdam hugleiðingu um tíma sinn á Ólympíuleikunum og hvað þyrfti til að komast á Vetrarólympíuleikana og ná árangri þar. Hafði þegar sigrað í lífinu „Áður en ég hóf þetta ferðalag hafði ég þegar sigrað í lífinu með því að hafa yndislegasta fólkið í kringum mig,“ skrifaði hún á Instagram. „Fyrir tveimur árum ákvað ég að stofna mitt eigið lið. Það var ekki auðveld ákvörðun en ég fann að hún var rétt fyrir mig. Ég handvaldi besta fólkið á sviðinu með bestu orkuna og hjörtun.“ Leerdam þakkaði þjálfurum sínum, liðsfélögum og samstarfsaðilum utan íssins, auk fjölskyldu sinnar, fyrir stuðninginn. Hún vottaði einnig unnusta sínum, YouTube-stjörnunni og hnefaleikakappanum Jake Paul, virðingu sína fyrir að „vera til staðar“ fyrir hana. „Ég endaði tímabilið á toppnum“ „Takk, unnusti minn, fyrir að vera til staðar fyrir mig, fyrir að hlusta á mig tala um þessa íþrótt sem þú þekktir ekki einu sinni áður en við hittumst, á hverjum einasta degi. Fyrir að leyfa mér að vera ég og styðja mig á þessu ferðalagi. Þú ert svo ástríkur maður. Ég elska þig, Jake.“ Leerdam lauk færslunni, sem inniheldur nokkrar myndir og myndbönd frá tíma hennar á Ítalíu, með því að þakka aðdáendum sínum og fylgjendum. „Ég endaði tímabilið á toppnum. Að verða Ólympíumeistari fullkomnar draumalistann minn. Ég er mjög sátt,“ skrifaði hún. „Látum þetta ferðalag sem kallast lífið halda áfram og gerum næsta kafla enn fallegri. Ég vona að þið njótið öll ferðarinnar.“ Elemelerde yarış tulumunun yırtılmasıyla viral olan Hollandalı patenci Jutta Leerdam, nişanlısı Jake Paul ile birlikte olimpiyat madalyalarını gösterdi. pic.twitter.com/4xoN5J4xVU— Populicc (@populicc) February 19, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Íshokkí Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sjá meira