Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur áhrif á Ólympíumót fatlaðra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 14:30 Giovanni Malago, forseti skipulagsnefndar Ólympíu- og Ólympíumóts fatlaðra í Mílanó Cortina 2026, sést hér á lokahátíð Vetrarólympíuleikanna. Getty/Kevin Voigt Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra, IPC, segist að hún fylgist náið með ástandinu á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum en Vetrarólympíumót fatlaðra fer fram í Mílanó og Cortina frá 6. til 15. mars.
Í fréttatilkynningu kemur fram að nefndin muni á næstunni halda áfram að „safna, staðfesta og meta tiltækar upplýsingar“ til að „ákvarða hvaða áhrif stríðið mun hafa á Ólympíumót fatlaðra“. „Að því er varðar Vetrarólympíuleika fatlaðra í Mílanó Cortina 2026, erum við að meta áhrifin á framkvæmd leikanna, einkum á ferðalög, um leið og við höldum skýrri áherslu á að skila bestu Vetrarólympíuleikum fatlaðra og tryggja að viðburðurinn þjóni áfram sem vettvangur til að efla félagslega þátttöku fyrir 1,3 milljarða fatlaðra einstaklinga í heiminum,“ segir í yfirlýsingunni. „Við gerum okkur grein fyrir því að þetta ástand hefur ekki aðeins áhrif á þær ólympíunefndir fatlaðra sem eiga að taka þátt í leikunum heldur einnig aðra meðlimi okkar. Við hugsum fyrst og fremst um hvernig þetta hefur áhrif á fólk og hugur okkar er hjá þeim sem verða fyrir áhrifum,“ segir einnig í yfirlýsingunni. IPC mun nú meta hvaða mögulegu afleiðingar ástandið í kringum Íran gæti haft á framkvæmd Ólympíumóts fatlaðra sem hefst í þessari viku. Meðal annars er sérstaklega vísað til fyrirhugaðra ferða til Ítalíu. „Við erum í nánu sambandi við allar sendinefndir sem eiga að keppa á leikunum, sem og aðra hagsmunaaðila. Mörg liðanna eru þegar í Evrópu á æfingum eða í æfingabúðum, en lokun loftrýmis í Mið-Austurlöndum hefur áhrif á komu sumra,“ skrifar IPC. Yfirmenn Ólympíumóts fatlaðra vilja ekki tjá sig um hvaða sendinefndir lenda í erfiðleikum en segja að unnið sé að því að finna lausnir fyrir þá sem málið varðar.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Sjá meira