Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Árni Sæberg skrifar 2. mars 2026 16:22 Héraðsdómur Reykjavíkur mun dæma í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga konu fimm sinnum á tæplega þriggja mánaða tímabili árið 2022 og svipta hana frelsi þrívegis.
Í ákæru þess efnis segir að maðurinn sæti ákæru fyrir að hafa frá kvöldi miðvikudags í lok ágúst til morguns daginn eftir notað líkamlega yfirburði sína og ógnandi tilburði til að varna konunni útgöngu, auk þess sem að síma hennar frá henni, og í kjölfarið haft samræði og önnur kynferðismök við hana án hennar samþykkis. Lamdi með keðju Hann hafi aðfaranótt sunnudags í september beitt ofbeldi og ólögmætri nauðung til að hafa samræði og önnur kynferðismök við konuna án hennar samþykkis en hann hafi haldið síma konunnar frá henni, haldið henni niðri, tekið hana hálstaki, slegið og bitið hana í andlitið og hrækt í andlit hennar áður en hann hafði við hana samræði og beit hana síðar um nóttina í upphandlegg hennar. Hann hafi að kvöldi í síðari hluta september læst konuna inni í íbúð þar sem þau dvöldu, haldið síma hennar frá henni og daginn eftir haft samræði vi hana án hennar samþykkis með því að beita hana ólögmætri nauðung og ógn um ofbeldi en hann hafi fyrr sama dag lamið hana með keðju á bert bak og beran rass hennar og strekkt band um háls hennar. Krefst þriggja milljóna Þá segir að maðurinn hafi frá miðvikudegi til fimmtudags um miðjan október neitað að leyfa konunni að yfirgefa þáverandi heimili hans og notað líkamlega yfirburði sína og ógnandi tilburði til að koma í veg fyrir að hún kæmist frá honum og haft við hana samræði án hennar samþykkis, eftir að hún sagði honum að henni væri illt og gæti ekki sofið hjá honum. Loks hafi hann í bifreið á ferð um Reykjavík, haft önnur kynferðismök við konunna án hennar samþykkis en hann hafi gripið um höfuð hennar og þvingað hana til að veita sér munnmök. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er fyrir hönd konunnar lögð fram miskabótakrafa upp á þrjár milljónir króna.
Kynferðisofbeldi Reykjavík Dómsmál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira