Skráir nýjan kafla í skíðasögu Íslendinga Sindri Sverrisson skrifar 2. mars 2026 17:56 Jónar Sebastían Giljan Grímssson skrifar nýjan kafla í skíðaíþróttasögu Íslands í dag. SKÍ Jónar Sebastían Giljan Grímssson gerist þessa dagana fyrstur Íslendinga til þess að keppa í skíðafimi á heimsmeistaramóti, á HM unglinga í skíðafimi og snjóbrettum í Kanada.
Jónar og Jökull Bergmann taka þátt í mótinu sem hófst í Calgary 24. febrúar og stendur yfir til 7. mars. Jökull keppir á snjóbretti en báðir taka þeir þátt í þremur greium. Jónar keppir í dag í big air, eða skíðaloftfimi. Í riðli hans eru 23 keppendur og fær hver þeirra tvær tilraunir þar sem betra stökkið gildir. Keppt er í þremur riðlum og komast sjö áfram úr hverjum riðli – alls 21 keppandi í úrslit. Hægt er að fylgjast með framgöngu hans á vef FIS eða í beinni útsendingu klukkan 20:45. Fyrr á mótinu tók Jónar þátt í undankeppni í brekkufimi (e. slopestyle) 26. febrúar. Smávægileg mistök í lendingu í fyrri ferðinni reyndust dýrkeypt og í seinni ferðinni setti vindur strik í reikninginn. Hann náði því ekki að komast í úrslit að þessu sinni. Jökull missti einnig af úrslitum í „slopestyle“ á bretti á laugardaginn en hafnaði þar í 56. sæti. Hann keppir í „big air“ á morgun. Þann 6. mars keppa þeir Jökull og Jónar svo í hindranakeppni (e. rail), þar sem keppt er eingöngu á járnum og hindrunum. Jónar keppir fyrir Skíðafélag Akureyrar (SKA) en stundar nám við skíðamenntaskólann NTG í Lillehammer í Noregi, þar sem hann sameinar nám og skíðaþjálfun. Jökull keppir einnig fyrir SKA en stundar nám og æfingar við snjóbrettaskóla í Svíþjóð og hefur á tímabilinu æft mikið undir leiðsögn Justin De Graaf, þjálfara Önnu Kamillu, landsliðskonu Íslands í snjóbrettum.
Skíðaíþróttir Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Fram - ÍA | Heimamenn hafa ekki unnið í fimm leikjum Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Dagskráin í dag: Breiðablik getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn Sextán ára stjarna Vals heillar Sjá meira