Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2026 15:26 Rósa Guðbjartsdóttir segir að meðan fjölmiðlar rifi seglin nú þegar þrengir að í efnahagslífinu blási ríkið út. Fjölmiðlanefnd er fyrirbæri sem Rósa telur til marks um fullkomið fánýti í rekstri hins opinbera. vísir/anton brink Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti. „
Það er komið að því að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra svari af hverju það sé svo brýnt að ríkið sé að hamast á hlaðvarpsstjórnendum og skýri þá um leið af hverju íslenska ríkið sé með aðra stefnu í þessum efnum en aðrar þjóðir,“ sagði Rósa og virtist sem góður rómur væri gerður að máli hennar í þingsal. Ríkið blæs út meðan aðrir rifa seglin Rósa sagði kostnað við rekstur Fjölmiðlanefndar vera um 120 milljónir króna á ári. „Ég legg því til að nefndin verði lögð niður eða verulega dregið úr umsvifum hennar. Var ekki eitt af verkefnum og markmiðum ríkisstjórnarinnar að hagræða? Hér er komið kjörið tækifæri til að létta á ríkisrekstrinum og um leið létta á eftirlitshlutverki ríkisins.“ Rósa sagði það skjóta skökku við að nú, þegar blikur væru á lofti í efnahagslífinu og fjölmörg fyrirtæki á almennum markaði væru að draga saman seglin, blési ríkið út sem og stofnanir þess. „Marga rak í rogastans þegar nýtt starf hjá Fjölmiðlanefnd var auglýst laust til umsóknar nú fyrir skemmstu. Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd og velti sú sem hér stendur einmitt tilgangi hennar og hlutverki fyrir sér úr þessum ræðustóli fyrir nokkrum vikum þegar fréttir bárust af því að nefndin herjaði á einstakling, Þórarin Hjartarson, sem heldur úti vinsælu hlaðvarpi, Einni pælingu. Nefndin hefur krafist þess að hlaðvarpið verði skráð sem fjölmiðill með tilheyrandi íþyngjandi kröfum.“ Vegið að tjáningarfrelsinu Rósa sagði að menn hlytu að velta því fyrir sér hvaða valdheimildir fjölmiðlanefnd hefði til slíks eða hverra hagsmuna eða erinda hún væri að ganga. En nefndin þumbist við og ítreki kröfur sínar. Að sögn Rósu er umhugsunarvert að hér á okkar litla landi séu hlaðvörp einstaklinga sérstaklega í skotlínu ríkisins, ólíkt því sem þekkist í mörgum þeirra landa sem við gjarnan berum okkur saman við. „Fjölmiðlanefnd vill ákveða hvaða hlaðvörp eru fjölmiðill og hver ekki. Bregðist einyrkinn ekki við erindinu blasir við stjórnvaldssekt sem hleypur á milljónum króna. Það gefur augaleið að einyrki stendur ekki undir slíku. Hér er því vegið mjög alvarlega að tjáningarfrelsi í landinu og að auki eru þessi hlaðvörp á erlendum streymisveitum sem ríkið ætti ekki að hafa neitt boðvald yfir,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Rekstur hins opinbera Fjölmiðlar Stjórnsýsla Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Dr. Football sektaður um hálfa milljón Fjölmiðlanefnd sendi stefnuvott að heimili Hjörvars Hafliðasonar, eiganda hlaðvarpsins Dr. Football, því hann svaraði ekki ítrekuðum erindum nefndarinnar. 22. október 2021 16:48 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira
Dr. Football sektaður um hálfa milljón Fjölmiðlanefnd sendi stefnuvott að heimili Hjörvars Hafliðasonar, eiganda hlaðvarpsins Dr. Football, því hann svaraði ekki ítrekuðum erindum nefndarinnar. 22. október 2021 16:48