Fórnarkostnaður kerfisins? Olga Cilia skrifar 4. mars 2026 10:02 Afhverju búum við til kerfi? Samfélög þurfa oft að finna leiðir til þess að auðvelda samvinnu, styðja við hvort annað og tryggja velferð heildarinnar. Við höfum þurft að þróa kerfin okkar eftir því sem okkur fjölgar. Mörg kerfi hafa ýtt undir velsæld og aukið jöfnuð að einhverju leyti. Það er í rauninni magnað ef við hugsum til þess að hér á landi er skólakerfi sem kennir börnunum okkar lestur og reikning. Dómskerfið, samgöngur og heilbrigðiskerfi eru allt dæmi um kerfi sem ættu að vera borgurum til góðs og styðja við þau í daglegu lífi þeirra. En hvað gerist þegar kerfin okkar bregðast? Til þess að kerfi geti borið ábyrgð þarf fólkið sem vinnur innan þeirra að axla ábyrgð. Valdi á alltaf að fylgja ábyrgð og eftirlit. En hvað ef að þau sem eru með völdin og ákvörðunarvaldið ákveða að líta í hina áttina? Erum við tilbúin að líta á fólk sem kemur illa út úr kerfinu eða einfaldlega tekur líf sitt sem ásættanlegan fórnarkostnað til að geta viðhaldið kerfum sem þarf að hugsa upp á nýtt? Ef barn eða einstaklingur er sent í úrræði á vegum ríkisins eða sveitarfélaga þá þarf samfélagið að geta treyst á það að einstaklingar í viðkvæmri stöðu njóti stuðnings og verndar. Þegar ekki er tekið á tilkynningum og kvörtunum um kerfin þá skapast rými fyrir óæskilega hegðun og hreint út sagt ofbeldi í garð einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Þegar kerfi bregðast þá bregst samfélagið. Þegar einstaklingar, og sér í lagi börn, upplifa að kerfið og samfélagið sé ekki styðjandi og veiti öryggi litast það út í allt líf einstaklingsins. Líf fólks á aldrei að vera ásættanlegur fórnarkostnaður til þess eins að viðhalda kerfinu. Það þarf að endurhugsa kerfin okkar frá grunni. Hvert er markmiðið og hvernig ætlum við sem samfélag að takast á við það þegar okkur er bent á að kerfið er brotið? Og stærri spurningin er, hvernig ætlum við sem samfélag að styðja hvort annað svo kerfið þurfi ekki í auknu mæli að grípa inn í? Mig langar að búa í samfélagi þar sem við látum okkur hvert annað varða. Þar sem foreldrar geta leitað til samfélagsins þegar eitthvað bjátar á eða þeim vantar aðstoð. Þar sem við upplifum samkennd og stuðning, ekki því við erum kerfi sem búið til af nokkrum, heldur út af því að við erum samheldin því það er það sem við þurfum til að lifa af. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Pírata í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar