Um hvað er raunverulega verið að spyrja? Stefán Vagn Stefánsson skrifar 4. júní 2026 07:01 Alþingi hefur samþykkt að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fari fram 29. ágúst næstkomandi. Margt hefur þegar komið fram í umræðunni og mörg sjónarmið verið reifuð. Það er eðlilegt. Hér er ekki um venjulegt þingmál að ræða heldur ákvörðun sem snertir framtíðarstöðu Íslands, sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar og grundvallarhagsmuni samfélagsins til langrar framtíðar. Einmitt þess vegna þarf umræðan að vera yfirveguð, fagleg og sanngjörn. Við megum ekki lenda í þeirri gryfju að beita slagorðum, upphrópunum eða stilla þjóðinni upp í fylkingar. Mikilvægast er að þjóðin eigi lokaorðið, en ekki síður að hún sjái og skilji til hlítar hvert stefnir. Samstarf eða einangrun? Ísland er sjálfstætt ríki í nánu evrópsku og alþjóðlegu samstarfi. Við eigum í víðtæku samstarfi við Evrópusambandið á grundvelli samningsins um EES, eins mikilvægasta viðskiptasamnings Íslands. Tengsl okkar við Norðurlöndin eru sterk og rótgróin og öryggi Íslands hvílir jafnframt á aðild að NATO og nánum varnarsamskiptum við Bandaríkin. Það er því ósanngjarnt og raunar rangt að stilla málinu upp eins og valið standi milli samstarfs við Evrópu eða einangrunar. Spurningin er ekki hvort Ísland eigi að eiga í samstarfi við Evrópuþjóðir. Það gerum við nú þegar og eigum að halda áfram að gera. Spurningin er hvort Ísland eigi að hefja ferli sem getur leitt til þess að ákvörðunarvald á mikilvægum sviðum flyst frá Íslandi til stofnana Evrópusambandsins. Auðlindaforræði er kjarni málsins Ísland er fámennt ríki en ríkt af auðlindum. Sjávarútvegur, endurnýjanleg orka, landbúnaður, matvælaframleiðsla, ferðaþjónusta, landið sjálft og hafið í kringum okkur eru undirstöður samfélagsins. Þess vegna er ekki nóg að lýsa því yfir að Ísland muni halda forræði og yfirráðum yfir auðlindum sínum. Það þarf að svara því hvað það þýðir í reynd. Hvaða skýru samningsmarkmið fylgja þeirri yfirlýsingu? Hvaða undanþágur á að sækja? Hvaða varanlegu tryggingar eiga að liggja fyrir? Hverju má fólk treysta? Þetta eru lykilspurningar áður en þjóðin er beðin um að taka afstöðu. Hvaða vanda á vegferðin að leysa? Við þurfum einnig að spyrja hvaða vanda þessi vegferð á að leysa. Ísland er rótgróið lýðræðisríki, réttarríki og eitt ríkasta samfélag heims. Íslensk fyrirtæki geta að verulegu leyti starfað á innri markaði Evrópusambandsins á grunni EES samningsins og við munum áfram rækta mikilvæg tengsl við nágrannaþjóðir okkar. Við megum því ekki tala okkur niður eða gera lítið úr stöðu okkar. Þær þjóðir sem nú sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu eru margar í allt annarri stöðu, bæði efnahagslega og pólitískt. Þetta breytir ekki því að við stöndum frammi fyrir áskorunum í efnahagsmálum, öryggismálum og alþjóðamálum. En er svarið við þeim áskorunum að færa meira ákvörðunarvald frá Íslandi, eða að styrkja stöðu Íslands á eigin forsendum? Sama gildir um umræðuna um evruna. Heimili og fyrirtæki finna fyrir háum vöxtum og verðbólgu og staðan er ekki nógu góð. En ef málið snýst í reynd um evru, þá eigum við að ræða evruna heiðarlega sem gjaldmiðil með sína kosti og galla, en ekki fela þá umræðu inni í ferli um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Vandaður undirbúningur er lýðræðisleg krafa Nú liggur fyrir að þjóðaratkvæðagreiðslan verður 29. ágúst. Þá skiptir undirbúningurinn öllu máli. Gögn þurfa að liggja fyrir. Kynningin og upplýsingar til almennings þurfa að vera hlutlægar og skiljanlegar. Rauðu línurnar þurfa að vera skýrar. Ef stjórnvöld geta ekki tryggt fullnægjandi upplýsingar, hlutlæga kynningu, opin gögn og skýr svör um rauðar línur Íslands, þá bregðast þau lýðræðislegri skyldu sinni. Þjóðin á lokaorðið. Það ber að virða. En virðing fyrir þjóðinni felst ekki aðeins í því að leggja spurningu fyrir kjósendur. Hún felst líka í því að tryggja að ákvörðunin sé tekin á traustum, heiðarlegum og upplýstum grunni. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar