Heilbrigðiseftirlit er nærþjónusta — ekki skrifborðsæfing Sigrún Guðmundsdóttir skrifar 4. júní 2026 08:32 Samræmt eftirlit er betra eftirlit. Um það ætti ekki að þurfa að deila. Fyrirtæki eiga að búa við fyrirsjáanlega stjórnsýslu. Íbúar eiga að njóta sambærilegrar verndar óháð búsetu. Kröfur, verklag, áhættumat, skráning, leiðbeiningar og eftirfylgni eiga ekki að ráðast af tilviljunum eða landshlutum. Ef misræmi er í framkvæmd heilbrigðiseftirlits þarf að bregðast við því. En það er stórt stökk frá þeirri niðurstöðu að segja að lausnin sé að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og færa verkefnin til ríkisstofnana. Samræming er ekki það sama og miðstýring. Í umræðu um framtíð heilbrigðiseftirlitsins hefur því verið haldið fram að ekki sé verið að leggja eftirlitið niður, heldur aðeins færa ábyrgð og framkvæmd þess til innan opinbera kerfisins. Formlega kann það að hljóma rétt. En fyrir íbúa, fyrirtæki og sveitarfélög skiptir ekki aðeins máli hvað stendur í skipuriti. Það skiptir máli hvernig eftirlitið virkar í reynd, hvar þekkingin liggur, hversu hratt er brugðist við og hvort stjórnsýslan þekki aðstæður á hverjum stað. Heilbrigðiseftirlit er ekki formsatriði. Það snýst ekki aðeins um heimsóknir í fyrirtæki eða athugasemdir við merkingar matvæla. Það snýst um örugg matvæli, heilnæmt neysluvatn, hollustuhætti í skólum, leikskólum, sundlaugum og íþróttamannvirkjum, mengunarvarnir, húsnæðisaðstæður, meindýr, kvartanir, starfsleyfi og skjót viðbrögð þegar hætta kemur upp. Þetta eru verkefni sem gerast ekki í tómarúmi. Þau gerast í sveitarfélögum, í nærumhverfi fólks. Þess vegna er eðlilegt að líta á heilbrigðiseftirlit sem nærþjónustu, með sambærilegum rökum og leik- og grunnskóla. Engum dytti í hug að segja að skólastarf sé óþarfa milliliður vegna þess að það er rekið af sveitarfélögum. Þvert á móti hefur það verið talið styrkur að slík þjónusta sé nálægt íbúum og taki mið af aðstæðum á hverjum stað. Sama á að verulegu leyti við um heilbrigðiseftirlit. Leik- og grunnskólar þurfa að þekkja börnin, fjölskyldurnar, húsnæðið, samgöngurnar og nærumhverfið. Heilbrigðiseftirlit þarf með sambærilegum hætti að þekkja vatnsveitur, fráveitur, matvælafyrirtæki, skóla, leikskóla, sundlaugar, gististaði, iðnaðarsvæði, úrgangsmál, húsnæðisaðstæður og staðbundin mengunar- og hollustuvandamál. Þessi þekking verður ekki til í miðlægu skipuriti. Hún verður til með reynslu, viðveru, samskiptum og eftirfylgni. Það er rétt að núverandi kerfi þarf að bæta. Ef fyrirtæki upplifa mismunandi kröfur milli umdæma þarf að taka það alvarlega. Ef upplýsingagjöf er ekki samræmd þarf að laga það. Ef gjaldskrár, áhættuflokkun eða verklag eru ólík milli svæða þarf að samræma þau betur. En spurningin er ekki hvort bæta eigi kerfið. Spurningin er hvernig. Ef veikleikar eru í núverandi kerfi er ekki sjálfgefið að lausnin sé að fjarlægja eftirlitið úr nærumhverfinu. Lausnin getur falist í sterkari sameiginlegum stjórntækjum: samræmdum verkferlum, sameiginlegum upplýsingakerfum, skýrari gæðakröfum, faglegri yfirumsjón, reglulegri úttekt á framkvæmd og betri miðlun upplýsinga milli heilbrigðiseftirlitssvæða. Það er allt annað en að leggja niður staðbundið heilbrigðiseftirlit. Í heilbrigðiseftirliti skiptir viðbragðsgeta miklu máli. Þegar grunur vaknar um matareitrun, mengun, ótryggt neysluvatn, heilsuspillandi húsnæði, meindýr, lyktarmengun eða aðra hættu þarf kerfið að geta brugðist hratt við. Þá skiptir máli að þekkja staðinn, aðilana, aðstæður og sögu málsins. Slík þekking sparar tíma, dregur úr hættu og eykur líkur á raunhæfum lausnum. Það er ekki nóg að segja að starfsfólk geti fylgt verkefnunum með til nýrra stofnana. Starfsfólk er vissulega lykilatriði, en þekking heilbrigðiseftirlits liggur ekki aðeins hjá einstaklingum. Hún liggur líka í tengslum við sveitarfélögin, við aðra stjórnsýslu, við vatnsveitur, fráveitur, skipulags- og byggingarmál, skóla, úrgangsmál, umhverfismál og þjónustu við íbúa. Þegar eftirlitið er staðbundið er auðveldara að sjá samhengi mála. Þegar það er fjarlægt úr nærumhverfinu eykst hættan á að mál verði afgreidd sem einangruð stjórnsýsluverkefni, en ekki sem hluti af lífsskilyrðum fólks. Það má heldur ekki gleyma megintilganginum. Heilbrigðiseftirlit er ekki fyrst og fremst þjónusta við atvinnulíf, þó það eigi að vera skilvirkt, sanngjarnt og fyrirsjáanlegt gagnvart fyrirtækjum. Það er fyrst og fremst lýðheilsu-, neytenda- og umhverfisvernd. Fyrirtæki njóta líka góðs af öflugu eftirliti, því traust á matvælum, hollustuháttum og umhverfisgæðum er forsenda heilbrigðs atvinnurekstrar. Þess vegna má ekki stilla þessu upp sem vali milli samræmis og óbreytts ástands. Auðvitað þarf meira samræmi. Auðvitað þarf skilvirkari stjórnsýslu. Auðvitað þarf fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki og almenning. En það þarf líka nálægð, staðbundna þekkingu og skjóta viðbragðsgetu. Alþingi ætti því ekki að leggja heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga niður í nafni einföldunar. Alþingi ætti að styrkja það: bæta samræmi, skýra ábyrgð, efla gæðakerfi, tryggja faglegt sjálfstæði og samræma stafræna innviði — án þess að glata þeirri nálægð sem gerir eftirlitið virkt í raun. Samræmt eftirlit er betra eftirlit. En samræmt eftirlit þarf ekki að vera fjarlægt eftirlit. Heilbrigðiseftirlit er nærþjónusta sem þarf að efla — ekki skrifborðsæfing sem má leysa með nýju skipuriti. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, ritari Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða og heilbrigðisfulltrúi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar