Grásleppufrumvarpið samþykkt Árni Sæberg skrifar 4. mars 2026 17:19 Lilja Rafney var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Vísir/Vilhelm Grásleppufrumvarp meiri hluta atvinnuveganefndar hefur verið samþykkt. Með því er kvótakerfi sem komið var á 2024 með grásleppu lagt af og hið gamla dagakerfi tekið upp að nýju.
Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 20. Einn þingmaður sat hjá. Hart tekist á Nokkuð hart hefur verið tekist á um frumvarpið síðan það var kynnt og áður en þriðja umræða um það hófst í gær gagnrýndu þingmenn minni hlutans harðlega að það hefði verið tekið til þriðju umræðu. Vísir fór yfir þær umræður í gær. Um miðjan febrúar hleypti frumvarpið störfum þingsins upp og skömmu fyrir það hafði Jón Gunnarsson hótað málþófi vegna þess. Við upphaf þingfundar dagsins baðst þingmaður Flokks fólksins afsökunar á orðum sem hann lét falla í umræðu um frumvarpið í gær. Lilja Rafney glöð í dag Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Hún sagði sig úr Vinstri grænum vegna samþykktar frumvarps þar sem grásleppuveiðar voru færðar í kvótakerfi árið 2024. „Virðulegi forseti. Hér fjöllum við um sameiginlega auðlind þjóðarinnar og vald Alþingis til að gera breytingar á stjórnun fiskveiða þar sem umráðaréttur yfir fiskveiði landsins er falinn lýðræðislega kjörnum fulltrúum hér,“ sagði hún þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu. Þingmenn hafi með frumvarpinu aukið jafnræði aðgengis að grásleppu, styrkt byggðir landsins og fjölbreytt útgerðarform fjölskyldna og einstaklinga. „Ég tel að við sýnum með þessari ákvörðun okkar, að samþykkja þetta frumvarp í dag, að við treystum líka þeim litlu útgerðum fyrir að sýna umhverfisvænar veiðar, að veiða hér en þetta þjappist ekki allt á fárra hendur og við stöndum vörð um þann hluta kerfisins sem er enn þá utan kvóta og við getum gert það á umhverfisvænan hátt, sjálfbæran hátt og það gerum við í þessum veiðum varðandi grásleppuna og hrognkelsin. Ég segi já og er glöð á þessum degi og þakka atvinnuveganefnd fyrir hennar vinnu.“ Já við sjálfbærni og nei við frumvarpinu Fleiri þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu og þónokkrir lýstu yfir mikilli óánægju með frumvarpið. Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokki sagði til að mynda að málið snerist um sjálfbærni í sjávarútvegi og benti á að í nefndaráliti meiri hlutans segi að lágmarksaflamark í grásleppu verði 4.500 tonn á ári. „Hér er bara verið að gefa vísindunum og náttúrunni og lífríkinu skilaboð. Hafró, þið bara skiljið það að það verða að vera alltaf 4.500. Löggjafinn segir það. Virðulegi forseti. Þetta er í boði Viðreisnar, nú fer um fólk, þetta er í boði Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Til lítils var barist fyrir sjálfbærni í sjávarútvegi. Virðulegi forseti. Ég segi já við sjálfbærni og þar af leiðandi nei við þessu frumvarpi.“ „Grásleppan fyrir ESB“ Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokki gerði einnig grein fyrir atkvæði sínu og sagði að með samþykkt frumvarpsins væri Alþingi að taka vonda ákvörðun, með því að taka grásleppuna út úr aflamarkskerfinu á grundvelli þingmannafrumvarps frá Flokki fólksins. „Þetta eru ófagleg vinnubrögð og þetta er óvönduð lagasetning. Það vekur athygli og furðu að hér er ráðherra málaflokksins í salnum og sér ekki sóma sinn í því að koma hér upp og gera grein fyrir sínu atkvæði. Hún sér ekki sóma sinn í því og ég geri verulegar athugasemdir við það, situr bara hér í stól og segir já. Ég ætla hins vegar að segja nei við þessu frumvarpi. Ég vek athygli á því að svona gerast kaupin á eyrinni. Grásleppan fyrir ESB. Svona er þetta hér á Alþingi.“
Sjávarútvegur Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira