Bræður settir í bann en fyrirliðinn sér tækifæri í skandalnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. mars 2026 16:02 Bilal Njie hefur verið settur í bann af KFUM vegna gruns um einhvers konar veðmálasvindl. Leikmennirnir tveir í norska liðinu KFUM sem sakaðir eru um vafasöm afskipti af fótboltaleikjum eru bræður að nafni Bilal og Moussa Njie. Fyrirliði liðsins lætur sér lítið um finnast og sér bara björtu hliðar málsins, enda að ganga í gegnum svona skandal í annað sinn á ferlinum.
Veðmálaskandall kom upp í Noregi í síðustu viku. Sjö einstaklingar voru handteknir og yfirheyrðir, ásakaðir um ólögleg afskipti af fótboltaleikjum. Þeir eru þó ekki beint ásakaðir um hagræðingu úrslita, eins og kom fram í fyrstu fréttum norskra miðla um málið, en eru ásakaðir um einhvers konar ólögleg afskipti af fótboltaleikjum. Nú hefur norski ríkismiðillinn greint frá því að meðal þeirra sjö sem voru handteknir séu bræðurnir Bilal og Moussa Njie, leikmenn KFUM. Þeir hafa verið settir í ótímabundið bann frá æfingum og leikjum liðsins. Þetta er í annað sinn á þessari öld sem veðmálaskandall skýtur upp höfði í Noregi. Fyrir fjórtán árum síðan voru sjö menn handteknir og á endanum voru fjórir sakfelldir fyrir að hagræða úrslitum í leik hjá liðunum Follo og Asker. Skandalarnir eiga það sameiginlegt að miðjumaðurinn Robin Rasch er viðriðinn málið, þrátt fyrir að hafa í hvorugt skipti verið ásakaður sjálfur. Hann var leikmaður Follo í hagrædda leiknum fyrir fjórtán árum síðan og er í dag fyrirliði KFUM og liðsfélagi Njie bræðranna. „Hópurinn þéttir sig saman þegar svona hlutir gerast. Eins og árið 2012, ég spilaði þann leik. Ég man eftir því að eftir það mál þá unnum við fullt af leikjum. Ég held að liðsheildin verði sterkari við þetta. Við upplifum það að fólk líti niður á okkur, þá skapast þetta „við á móti hinum“ hugarfar sem gerir okkur sterkari. Þetta er bara klassísk íþróttasálfræði og hingað til erum við bara bjartsýnir,“ sagði Rasch við NRK.
Norski boltinn Fjárhættuspil Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Sjá meira