„Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. mars 2026 21:03 Þurý Björk Björgvinsdóttir, yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. vísir/sigurjón Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu.
Átök í Miðausturlöndum halda áfram að geisa eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árás sína á Íran á laugardag. Íranir skutu eldflaugum á Ísrael í nótt og Ísraelsher stóð fyrir eldflaugaárás á innviði í Tehran í dag. Herinn beindi því einnig til íbúa í suðurhluta Beirút-borgar að flýja vegna árásar. Langar raðir mynduðust úr borginni í dag. Myndefni frá Tehran sýnir eyðileggingu síðustu daga. Kier Starmer forsætisráðherra tilkynnti í dag að Bretland muni senda fjórar herþotur til viðbótar til Katar. Þorgerður Katrín utanríkisráðherra sagði það í skoðun að senda flugvél til Mið-Austurlanda til að sækja íslenska ríkisborgara í óundirbúnum fyrirspurnum í morgun. „Fyrst og fremst skiptir máli að borgaraþjónustan er vakin og sofin yfir þessu og er að hafa samband við fólkið okkar.“ Borið hefur á því að fólk hafi gagnrýnt viðbrögð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins við ástandinu og segja litla hjálp berast við að komast frá svæðinu. Til að mynda sögðust fjórar ungar konur ekki geta nýtt sér úrræði þjónustunnar í samtali við fréttastofu í gær og Íslendingur í Barein kvartaði undan afskiptaleysi. „Við höfum mikinn skilning á því að undir þessum kringumstæðum er óöryggið og hræðslan það mikil að auðvitað villtu fá björgun. Það er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður.“ Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir þjónustuna gera allt í sínu valdi. Í gær var tilkynnt um átján sæti í þremur björgunarflugum fyrir Íslendinga frá svæðinu. „Við erum að vinna allan sólarhringinn að því að finna lausnir fyrir fólk sem er í þessum aðstæðum. Þetta eru 68 fjölskyldur en það er líka stór hluti þessa fólks sem býr og starfar í þessum heimshluta og vill ekki fara í burtu og er bara að láta vita af sér. Við erum búin að búa til sérstakt flugteymi með starfsfólki hér og fulltrúa frá almannavörnum sem eru að fylgjast með öllum þessum flugferðum og senda út upplýsingar til fólks,“ þegar fréttastofu bar að garði voru fjórir starfsmenn borgaraþjónustunnar að störfum með einum öðrum frá almannavörnum. Í spilaranum hér að ofan má sjá starfsmenn borgaraþjónustunnar vinna hörðum höndum að því að eiga í samskiptum við þá rúmlega 180 Íslendinga sem vitað er að hafi verið á svæðinu. 181 hefur látið vita af sér og af þeim hafa 35 komist af hættusvæðinu. Hún bendir á að lofthelgin sé enn lokuð og aðstæður afar erfiðar. Norðurlöndin og jafnvel Bandaríkin hafa ekki enn sent björgunarflug á svæðið. „Við erum með fólk í mörgum löndum, dreift um risasvæði og það hefur bara áhrif. Í þessum heimshluta erum við ekki með neitt sendiráð og mörg ríki leyfa ekki heldur kjörræðismenn og því höfum við engan á staðnum. Það eðlilega takmarkar okkar getu til viðbragða.“
Íslendingar erlendis Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Utanríkismál Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira