Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson skrifar 8. mars 2026 18:01 Nú á að blása til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið til að „kíkja í pakkann“ og gefa þjóðinni færi á að taka upplýsta ákvörðun um inngöngu í kjölfarið. Það er vissulega alltaf góðra gjalda vert að leggja stór mál í dóm þjóðarinnar. En lýðræðið virkar bara ef umræðan byggir á staðreyndum. Raunin er sú að ESB sinnar hafa leyft sér að líta til úreldra fordæma og tala ábyrgðarlaust um sérsniðinn „pakka“ sem muni standa okkur til boða til að réttlæta þessa vegferð. Eitt lífseigasta dæmið er „danska fordæmið“. Margir virðast halda að Ísland geti, líkt og Danmörk, samið um varanlegar undanþágur frá stórum málaflokkum ESB. Þetta er grundvallarmisskilningur. Danmörk tryggði sér sínar undanþágur árið 1992 af því að landið var nú þegar í sambandinu. Fyrir ný ríki sem sækja um í dag gilda allt aðrar reglur. Grunnkrafan er ófrávíkjanleg: Ný ríki verða að taka upp allt regluverk ESB (acquis communautaire). Hugmyndin um „Evrópu a la carte“ hefur verið liðin undir lok í rúmlega 20 ár. Þeir sem kalla eftir því að hefja viðræður að nýju reyna iðulega að tefla fram smávægilegum og staðbundnum undanþágum annarra ríkja – eins og takmörkunum á fasteignakaupum á Möltu eða snus-sölu í Svíþjóð – sem sönnun þess að Ísland gæti fengið varanlegar sérlausnir fyrir stærstu hagsmunamál þjóðarinnar: sjávarútveginn. Að vernda lítinn fasteignamarkað á Möltu eða einangra sænskt munntóbak truflar ekki innri markað ESB. Að krefjast varanlegrar, fullrar undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni (CFP) er hins vegar eitthvað sem ESB getur aldrei samþykkt án þess að kerfið hrynji. Raunveruleikinn er nefnilega allt annar og mun harðari en talsmenn inngöngu vilja vera láta. Heather Grabbe, sérfræðingur hjá evrópsku hugveitunni Bruegel í Brussel, tók af allan vafa um þetta í kvöldfréttum RÚV nú um helgina þegar hún útskýrði hvernig aðildarferlið virkar í dag: „Þetta hefur þegar verið samþykkt af 27 ríkjum. Önnur ríki hafa gengið í sambandið og þurft að skrifa undir allt. En ríki sem vill ganga inn getur alltaf samið um tímalínu innleiðingar á reglum og reglugerðum ESB. [...] Þannig að það er svigrúm til að semja um aðlögunartímabil, en það eru engar undanþágur í boði lengur.“ Hér talar utanaðkomandi sérfræðingur úr hjarta Evrópusambandsins skýrt. Viðræðurnar snúast ekki um innihald pakkans. Innihaldið er löngu ákveðið. Viðræðurnar myndu eingöngu snúast um það hversu langan tíma það tæki Ísland að laga sig að ófrávíkjanlegum reglum sambandsins. Sem dæmi nefndi Grabbe að pólskir bændur þurftu að bíða í áratug eftir að fá fulla styrki úr landbúnaðarstefnunni, þrátt fyrir að þurfa að hlíta reglunum strax. Það er vert að taka fram að Bruegel hugveitan er engin andstæðingur Evrópusambandsins, heldur ein áhrifamesta og þekktasta ESB-sinnuðu hugveitan í Brussel. Þegar meira að segja helstu talsmenn samrunaferlisins viðurkenna fúslega að engar undanþágur séu í boði, þá ætti það að hringja viðvörunarbjöllum þegar talsmenn inngöngu Íslands telja að við höfum yfirhönd í samningaviðræðum og Brussel sé á hnjánum. Höfundur er forritari og situr í framkvæmdastjórn samtakanna Til vinstri við ESB Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Jökull Sólberg Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar