Felldu sex í árás á enn einn bátinn Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2026 12:29 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og skjáskot úr myndbandi hersins sem sýnir bátinn fljóta kyrrstæðan rétt áður en hann var sprengdur í loft upp. AP/Konstantin Toropin og SOUTHCOM Bandarískir hermenn gerðu í gær árás á bát á austanverðu Kyrrahafi, undan ströndum Bandaríkjanna, og felldu þar sex menn. Báturinn er sagður hafa verið notaður til að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna en fjölmargar sambærilegar árásir hafa verið gerðar á Kyrrahafi og Karíbahafi á undanförnum mánuðum.
Árásirnar eru orðnar fleiri en fjörutíu og er vitað til þess að að minnsta kosti 157 manns hafi dáið í þeim. Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið- og Suður-Ameríku birti í nótt myndband af árásinni. Eins og oft áður er því haldið fram að bátnum hafi verið siglt eftir þekktum smyglleiðum en að öðru leyti eru engar sannanir færðar fyrir því að stjórnendur bátsins hafi verið að brjóta lög. On March 8, at the direction of #SOUTHCOM commander Gen. Francis L. Donovan, Joint Task Force Southern Spear conducted a lethal kinetic strike on a vessel operated by Designated Terrorist Organizations. Intelligence confirmed the vessel was transiting along known… pic.twitter.com/hIXMDeDKK5— U.S. Southern Command (@Southcom) March 9, 2026 Donald Trump og starfsfólk hans hafa haldið því fram að Bandaríkin eigi í átökum við fíkniefnasamtök í Suður-Ameríku sem hafa verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Því hefur verið haldið fram að þessir meintu smyglarar séu vígamenn og að Bandaríkin eigi í átökum við þá. Átök þessi eiga að vera sambærileg átökum Bandaríkjanna við hryðjuverkamenn svo þingið þurfi ekki að lýsa yfir stríði, í samræmi við lög. Árásirnar eru verulega umdeildar en Bandaríkjamenn hafa ekki fært sannir fyrir ásökunum sínum um að bátarnir séu notaðir til að smygla fíkniefnum. Þar að auki er ekki dauðarefsing fyrir fíkniefnasmygl í neinu ríki Bandaríkjanna og hafa árásirnar verið gagnrýndar harðlega sem aftökur án dóms og laga. Vilja fá fleiri til að taka þátt Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fundaði um helgina með þjóðarleiðtogum í Suður-Ameríku og hvatti hann þá til að taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna gegn fíkniefnasamtökum og glæpasamtökum, sem hann sagði ógna þjóðaröryggi Bandaríkjanna, samkvæmt AP fréttaveitunni. Yfirvöld í Ekvador hafa samþykkt þetta en undanfarna viku hafa bandarískir hermenn starfað með þarlendum hermönnum og farið í hart gegn skipulögðum glæpasamtökum þar.
Bandaríkin Hernaður Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira