Viðskipti innlent

Iðnaðurinn forherðist í and­stöðu gegn ESB

Kjartan Kjartansson skrifar
Höfuðstöðvar Samtaka iðnaðarins í Borgartúni. Samtökin sjálf hafa ekki tekið formlega afstöðu til ESB-aðildar þótt meirihluti félagsmanna sé andvígur henni.
Höfuðstöðvar Samtaka iðnaðarins í Borgartúni. Samtökin sjálf hafa ekki tekið formlega afstöðu til ESB-aðildar þótt meirihluti félagsmanna sé andvígur henni. Samtök iðnaðarins

Vaxandi meirihluti félagsmanna Samtaka iðnaðarins er andvígur aðild Ísland að Evrópusambandinu. Aðeins um fjórðungur þeirra er hlynntur aðild samkvæmt nýrri könnun sem var gerð á meðal þeirra.

Samtökin greina frá niðurstöðum könnunarinnar sem var gerð í febrúar og mars sama dag og Alþingi byrjar að fjalla um þingályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.

Fimmtíu og sjö prósent félagsmanna SI sögðust andvíg aðild Íslands, þar af 43 prósent mjög andvíg. Tæplega tvöfalt fleiri er nú mjög andvíg aðild en í sambærilegri könnun árið 2024.

Á sama tíma fækkaði þeim sem voru mjög fylgjandi úr sautján prósentum árið 2024 í tíu prósent nú. Þeir sem eru frekar hlynntir eru nú fimmtán prósent en þeir voru tuttugu prósent fyrir tveimur árum.

Samtökin segjast sjálf ekki hafa tekið afstöðu til aðildar Íslands að ESB. Til stendur að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna um viðræðurnar í lok ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×