Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Sindri Sverrisson skrifar 11. mars 2026 18:07 Alireza Jahanbakhsh og félagar ættu að vera að hlakka til HM en vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum er ólíklegt að þeir verði með á mótinu. Getty/Etsuo Hara Útlit er fyrir að í fyrsta sinn í 76 ár muni lið draga sig úr keppni á HM í fótbolta í sumar. Íþróttamálaráðherra Írans segir ekki koma til greina að mæta á mót í Bandaríkjunum eftir að Bandaríkjamenn réðu æðstaklerkinn Ali Khamenei af dögum.
Óvissa hefur ríkt um þátttöku Írans á HM í sumar eftir innrás Bandaríkjanna og Ísraels í Íran sem hófst 28. febrúar og hefur valdið dauða að minnsta kosti 1.255 manns og sært 12.000. „Í ljósi þess að þetta spillta stjórn [Bandaríkjanna] hefur ráðið leiðtoga okkar af dögum þá getum við ekki með nokkru móti tekið þátt í heimsmeistaramótinu,“ sagði Ahmad Donyamali, íþróttamálaráðherra Írans, í ríkissjónvarpi landsins. „Börnin okkar eru ekki örugg og það eru algjörlega engar forsendur fyrir því að taka þátt,“ sagði Donyamali. Áður hafði formaður íranska knattspyrnusambandsins gefið út að ólíklegt væri að Íran yrði með á HM en Donyamali er fyrsti ráðamaður ríkisins sem tjáir sig um málið. Gianni Infantino, forseti FIFA, hefur sagst hafa fundað með Donald Trump Bandaríkjaforseta og fengið fullvissu þess að landslið Írans sé velkomið á HM. Hins vegar er ljóst að stuðningsmenn geta ekki fylgt liðinu. Íran var á meðal fyrstu þjóða til að tryggja sér farseðil á HM sem fram fer 11. júní til 19. júlí. Liðið dróst í riðil með Egyptalandi, Belgíu og Nýja-Sjálandi og á að spila leiki sína í Inglewood og Seattle. Eins og fyrr segir hefur landslið ekki dregið sig úr keppni á HM síðan árið 1950 þegar Indland og Frakkland hættu við að mæta vegna kostnaðar við að ferðast til Brasilíu. Sérfræðingur Sky Sports segir að ef Íran verði ekki með á HM þá sé líklegast að annað lið frá Knattspyrnusambandi Asíu taki sæti þjóðarinnar. Það yrði þá Írak eða Sameinuðu arabísku furstadæmin, en Írakar spila í umspili við Bólivíu eða Súrínam í lok þessa mánaðar um síðasta lausa sætið á HM, eftir að hafa unnið Sameinuðu arabísku furstadæmin fyrr í umspili. Landsliðsþjálfari Íraks hefur reyndar kallað eftir því að umspilsleik liðsins verði frestað þar til viku fyrir HM, vegna þess hve staðan sé erfið núna varðandi það að koma leikmönnum frá Mið-Austurlöndum en umspilið fer fram í Mexíkó.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Sjá meira