Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. mars 2026 06:02 Meðalbiðtími hjá heilsugæslunni í Hlíðunum eru átján dagar. Vísir/Vilhelm Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis.
Embætti landlæknis miðar við að eftir að skjólstæðingur hefur haft samband við heilsugæslustöð ætti hann að fá viðtal við heilsugæslulækni innan fimm daga. Einungis heilsugæslurnar í Hamraborg og á Kirkjusandi standast viðmiðin þar sem meðalbiðtími er fjórir dagar. Lengsta biðin er hjá Hvammi þar sem meðalbiðtíminn er 115 dagar. Þá er ekki hægt að bóka tíma hjá heilsugæslunum í Firðinum, Garðabæ og á Höfða. Meðalbið eftir heimilislækni séu 27 dagar. Viðskiptaráð Tekið er fram að þessi biðtími miðast við næsta lausa almenna tíma hjá heimilislækni en biðtími vegna alvarlegra tilfella er alla jafna styttri. Starfandi læknar geti þjónustað helming landsmanna Samkvæmt útreikningum Viðskiptaráðs tryggir núverandi fjöldi starfandi heimilislækna aðeins helmingi landsmanna aðgang að heimilislækni. Á Íslandi starfi um 160 sérfræðingar í heimilislækningum en viðmiðið er að hver læknir geti sinnt 1200 einstaklingum. Starfandi læknar geti því náð að þjónusta 192.000 manns, sem nemur helmingi þjóðarinnar. Vísað er í rannsókn í úttektinni sem segir að einstaklingar með fastan heimilislækni séu ólíklegri til að leggjast inn á spítala og lifi almennt lengur. Viðskiptaráð „Ef einungis væri gripið til fjölgunar heimilislækna þyrfti að fjölga heimilislæknum um 165 til viðbótar til að tryggja öllum þjónustu. Búast má við fjölgun um 100 á næstu árum vegna lækna í sérnámi í heimilislækningum. Sú fjölgun mun ekki duga, því er brýnt að grípa til aðgerða sem auka afköst heilsugæslustigsins,“ segir í úttektinni. Mesta ánægjan mælist hjá einkareknum heilsugæslum Fjórar heilsugæslur eru einkareknar, sem sinna um 27 prósentum skráðra skjólstæðinga, og mælist mesta ánægjan með þjónustuna þar. Mesta ánægjan er hjá heilsugæslunni Salahverfi og þar á eftir á Kirkjusandi. Heilsugæslurnar á Höfða og í Urðarhvarfi eru í þriðja og fjórða sæti. Viðskiptaráð Einkareknu heilsugæslurnar eru þá að jafnaði átta prósentum hagkvæmari en þær opinberu. Allar heilsugæslurnar eru fjármagnaðar með sama fjármögnunarlíkani þar sem greitt er á grundvelli áætlaðra þarfa skjólstæðinga en ekki magni þjónustu. „Hagkvæmni heilsugæslu er mæld í rekstrarkostnaði á hverja verkeiningu heilsugæslu, en verkeiningar fást með því að umbreyta öllum samskiptum heilbrigðisstarfsfólks heilsugæslustöðvar í ígildi læknisviðtals og deila með rekstrarkostnaði stöðvarinnar.“ Viðskiptaráð Á Íslandi eru mun færri einkareknar heilsugæslur en á öðrum Norðurlöndum. Í Noregi er algengast að heilsugæslur séu einkareknar og þar starfa um 78 prósent sjálfstætt. Hlutdeild einkarekstrar á Íslandi er 26 prósent en í Danmörku hundrað prósent, þar sem allir heimilislæknar starfa sjálfstætt en eru með samninga við ríkið samkvæmt úttektinni. Leggja til að rekstur heilsugæslustöðva verði boðinn út „Umhverfi heilsugæsla á Íslandi stenst ekki þarfir samfélagsins. Biðlistar eru langir og þjónustuskerðingar hafa í auknum mæli beint fólki í dýrari og sértækari úrræði heilbrigðiskerfisins sem felur í sér aukinn samfélagslegan kostnað,“ segir í úttekt Viðskiptaráðs. Lagðar eru til þrjár tillögur að bættri heilsugæsluþjónustu. Sú fyrsta er að jafna rekstrarskilyrði óháð formi en í því felst meðal annars að jöfnun kjara vegna rannsóknarþjónustu og samræma meðferð virðisaukaskatts. Viðskiptaráð leggur til að jafnt aðgengi verði að sérnámslækningum í heimilislækningum en tekur fram að hingað til hafi einungis opinberar heilsugæslur fengið styrk til að taka við sérnámslæknum. Önnur tillagan varðar aukna samkeppni í rekstri heilsugæslanna. Lagt er til að rekstur heilsugæslustöðva Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði boðinn út í áföngum og þannig opnað fyrir fleiri rekstraraðila. Að lokum leggur ráðið til að fjármögnun heilsugæslu verði frekar tengd við árangur og raunverulega veitta þjónustu. Ráðist verði í mælingar tengdar afköstum, aðgengi og gæðum þjónustu og greitt verði út frá því. Ítreka tilmæli Samkeppniseftirlitsins Í úttektinni eru tilmæli Samkeppniseftirlitsins ítrekuð en eftirlitið telur að einkareknar heilsugæslur búi við ýmsar takmarkanir umfram opinberar. Það leggur því til að rannsóknarkostnaður verði jafnaður og miðlæg þjónusta aðskilin. Þjónusta HH sem símanum 1700 er sérstaklega tekin fyrir þar sem ef upplýsingamiðstöðin vísar skjólstæðingi á aðra stöð en hann er skráður eru sjö þúsund krónur millifærðar á stöðina sem hann mætir á. Því hafi upplýsingamiðstöðin fjárhagslegan hvata til að vísa þeim sem eru skráðir á einkarekna heilsugæslu til heilsugæslu HH. Viðskiptaráð Samkeppniseftirlitið leggur einnig til að eftirlit verði með skilyrðum þjónustusamninga, að ríkið kosti stöðu sérnámslækna hjá einkareknum gæslum líkt og hjá opinberum og að tekið verði tillit til iðgjalda til Sjúkratrygginga í fjármögnunarlíkaninu. Að lokum er ráðlagt að endurskoða endurgreiðslu virðisaukaskatts þar sem opinberar stöðvar fá skattinn endurgreiddan, til dæmis vegna ræstinga og snjómoksturs. Einkareknar fá fasta fjárhæð greidda vegna virðisaukaskattsálags á hverju ári.
Heilbrigðismál Heilsugæsla Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær Mosfellsbær Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Sjá meira