Ísland er ekki til sölu Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar 12. mars 2026 11:01 Boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla um aðlögunarviðræður Íslands að Evrópusambandinu er eitt stærsta hagsmunamál sem komið hefur á dagskrá þjóðmálaumræðunnar um langa hríð. Um það getur fólk haft ólíkar skoðanir. Sumir sjá í slíku ferli tækifæri meðan aðrir telja meiri skynsemi felast í því að standa utan Evrópusambandsins. Það er afstaða Framsóknar. Ástæðan er sú að EES-samningurinn veitir okkur þann aðgang að innri markaði ESB, sem þjóðin þarf á að halda. Á sama tíma höfum við fullt forræði yfir auðlindum okkar. En hvaða afstöðu sem fólk hefur, hljótum við þó öll að geta verið sammála um eitt: Að auðlindir Íslands eru ekki til sölu. Langtímahagsmunir Íslands Ísland er fámennt ríki. En það er ekki smátt í þeim skilningi sem mestu skiptir. Við búum yfir miklum auðlindum: fiskimiðum, orku, vatni, landi, hreinu umhverfi og landfræðilegri stöðu sem hefur sífellt meira öryggis- og stjórnmálalegt vægi. Þetta eru ekki aðeins verðmæti samtímans. Þetta eru lífsgæði, velferð og framtíðarmöguleikar komandi kynslóða. Velferð okkar stendur og fellur að verulegu leyti með þessum þáttum og hvernig við umgöngumst þá. Hagkerfi okkar er auðlindahagkerfi, þar sem stærstur hluti gjaldeyristekna þjóðarbúsins kemur frá auðlindum hennar: náttúru Íslands, hafinu í kringum okkur, fallvötnum og jarðvarma. Ef þessar auðlindir eru ekki nýttar í þágu þjóðar, þá versna lífskjör á Íslandi verulega. Auðlindir og öryggi Auður þjóða glatast sjaldnast í einu vetfangi. Hann getur horfið hægt, með smáum skrefum, með samningum sem virðast saklausir í byrjun, eða með framsali á ákvörðunarvaldi sem fólk áttar sig ekki fyllilega á fyrr en síðar. Þess vegna verðum við sem þjóð að átta okkur á þeirri gæfu sem felst í því að stýra okkar auðlindum í þágu þjóðarinnar. Það er merki um skýra framtíðarsýn og kjark að verja fullt forræði þjóðarinnar yfir auðlindum sínum. Það er merki um ábyrgð. Ekki síst á tímum þegar öryggismál, orkumál, matvælaöryggi og yfirráð yfir innlendum gæðum og verðmætum skipta sífellt meira máli í stöðugt ótryggari heimi. Skýrt umboð og skýr mörk Nú hefur þjóðin verið kölluð að borðinu og boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er lýðræðissinni og treysti þjóðinni. Ég hlakka til þessa samtals um hagsmuni og framtíð landsins okkar. Þess vegna er brýnt að allar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna séu almenningi aðgengilegar. Allt ferli stjórnvalda þarf líka að vera gagnsætt. Það þarf að liggja skýrt fyrir hvaða hagsmunir eru í húfi og hvaða áhrif framhald viðræðna, og eftir atvikum aðild, gæti haft til lengri tíma. Ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum Ísland er auðugt land. En verðmæti þarf ekki aðeins að nýta og rækta heldur einnig að verja. Við eigum auðlindir okkar ekki aðeins fyrir okkur sjálf heldur líka fyrir börnin sem taka við landinu á eftir okkur. Okkar hlutverk er ekki aðeins að njóta þeirra gæða sem hér eru til staðar, heldur einnig að skila þeim áfram til komandi kynslóða. Ísland verður aldrei til sölu. Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Dögg Alfreðsdóttir Framsóknarflokkurinn Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar