Skoðun

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Ágúst Mogensen skrifar

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum. En lögum samkvæmt eiga allir bílar að vera á dekkjum með a.m.k 3 mm mynstursdýpt, frá 1. nóvember.

Á þessum tíma fyrir ári síðan lagðist yfir höfuðborgarsvæðið ófærðarveður með miklum hvelli og á örskotsstundu sátu bílar fastir á stofnbrautum og í húsagötum því margir voru enn á sumardekkjum. Þennan örlagaríka dag urðu 80 útköll vegna árekstra á höfuðborgarsvæðinu en það er sami fjöldi og í meðalviku. Tilkynningar um óhöpp til tryggingarfélaga voru enn fleiri og er ljóst að heildarfjöldi árekstra þennan dag var talinn í hundruðum.

Hvers vegna dýptin skiptir málir

Rannsóknir sýna að þegar bíll er stöðvaður í snjó sem ekur á 50 kílómetra hraða á vetrardekkjum þá stöðvast hann eftir 25- 32 metra. Ef hins vegar bíllinn er á sumardekkjum þá stöðvast bíllinn ekki fyrr en eftir allt að 63 metra. Það er eins og að renna yfir alla Laugardalslaug og 13 metra til viðbótar upp á bakkann. Góð vetrardekk geta skipt sköpum um hvort tekst að stöðva bíl í tæka tíð. Í umferðinni, til dæmis þegar hætta er á aftanákeyrslu eða öðrum árekstri, getur styttri hemlunarvegalengd ráðið úrslitum.

Munurinn liggur í því að mynsturdýpt á að vera a.m.k. 3 mm og dekkin þverskorin svo þau hafi gott grip við íslenskar aðstæður. Því dýpra sem mynstrið er því betra er gripið og hemlunarvegalengdin á blautum eða hálum vegum meiri. En höfum í hugað að mynsturdýpt sem er 3 mm í nóvember er ekki endilega enn 3 mm í apríl því dekkin slitna við notkun og þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með ástandi dekkja á bílum sínum.

Frá 1. nóvember til 14. apríl eiga allar bifreiðar að vera með lágmarks mynstursdýpt á hjólbörðum og það getur verið dýrkeypt að gæta ekki að því. Því lögreglan hefur eftirlit með dekkjanotkun landsmanna og sektar fyrir hvert dekk sem ekki uppfyllir kröfur laganna.

Ekki bíða eftir fyrsta snjóhretinu

Þó það geti verið freistandi að fresta því að skoða dekkin þegar göturnar eru enn snjólausar og lítið um frost, getur fyrsti alvöru snjór vetrarins fallið með skömmum fyrirvara. Þá er of seint að uppgötva að gömlu vetrardekkin sem virtust „sleppa einn vetur í viðbót“ hafa einfaldlega ekki nægilegt grip. Vetrardekk eru öryggisbúnaður. Þau halda bílnum stöðugum í beinum akstri og beygjum og það sem mestu máli skiptir, hjálpa okkur að stöðva þegar eitthvað óvænt gerist.

Skoðum því dekkin áður en veturinn tekur ákvörðunina fyrir okkur. Ef þau eru orðin slitin, þá er tíminn til að skipta núna en ekki þegar bíllinn situr fastur eða rennur stjórnlaust í fyrstu hálkunni

Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×