Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar 13. mars 2026 13:00 Hvað er það sem heldur þér gangandi? Hvaða þættir í lífinu veistu að eru mikilvægir fyrir þig svo þú sért í góðu ástandi? Oft vitum við hvaða hlutir þetta eru, t.d. næg hvíld, hreyfing, einvera, samvera, tími fyrir ákveðin áhugamál og margt fleira. En hitt er svo annað mál hvort við komum þessum hlutum fyrir í deginum okkar. Flest höfum við ákveðna þætti sem halda okkur gangandi, sem gefa orku, hjálpa okkur að líða vel og vera sú útgáfa sem við viljum vera. Ég hvet þig til að skoða hvað það er sem heldur þér gangandi og skrifa þessa þætti niður hjá þér. Það má segja að þessir þættir séu eins konar ,,eldsneyti” fyrir taugakerfið. Þegar við gefum okkur reglulega tíma fyrir það sem nærir okkur styður það við jafnvægi í taugakerfinu og hjálpar líkamanum að fara úr álagsástandi yfir í ástand sem tengist endurheimt og vellíðan. Til að byrja með höfum við öll ákveðna sameiginlega grunnþætti eins og svefn, hreyfingu og mataræði. En mig langar til að hvetja þig til að líta í eigin barm og skoða hvað það er raunverulega sem þú veist að þú þarft að gera reglulega til þess að þú sért í góðu jafnvægi og líði vel. Það er svo auðvelt að keyra bara í gegnum lífið, að komast í gegnum dagana, fara í það sem við þurfum að gera og bregðast stöðugt við áreiti og fólki í kringum okkur. Þá gleymum við oft að staldra við og taka virka stjórn á deginum okkar og lífinu, til að gefa tíma og rými fyrir það sem glæðir okkur lífi og orku. Annað sem getur komið í veg fyrir að við gefum okkur tíma fyrir það sem skiptir okkur máli eru viðhorf okkar, við getum t.d. hugsað: ,,Æi þetta skiptir ekki máli” eða ,,Ég verð að bregðast við þessum tölvupósti eða þessari manneskju”. Þannig forgangsröðum við oft öðrum og öðru fram yfir það sem við vitum innst inni að mun næra okkur og hafa jákvæð áhrif á ástand okkar. Rannsóknir í sálfræði og lífeðlisfræði sýna að þegar við sinnum reglulega þáttum eins og hvíld, hreyfingu, félagslegum tengslum og tíma fyrir okkur sjálf styður það við betri streitustjórnun, tilfinningajafnvægi og aukna vellíðan. Þegar þú hefur fundið þína þætti Þegar þú hefur borið kennsl á og jafnvel skrifað niður hvað það er sem gefur þér orku og heldur þér gangandi, getur verið gagnlegt að bæta við spurningu: Hversu oft eða hversu mikið þarf ég á þessu að halda? Til dæmis: Svefn = 7-9 klst. svefn á hverri nóttu Hreyfing = um 30 mínútna hreyfing á dag (hlaup, ganga, styrktaræfingar o.s.frv.) Tími fyrir mig = 1 klst. 4-5 sinnum í viku Svo er auðvitað hægt að nefna félagsleg tengsl, sérstök áhugamál, tími í náttúrunni og margt fleira. Þetta er mjög einstaklingsbundið. Sumir þurfa mikla hreyfingu en aðrir minna. Sumir þurfa mikla einveru á meðan aðrir þurfa meiri samveru. Það sem skiptir mestu máli er að staldra við og vera hreinskilin við sjálfan sig, hvað er það sem skiptir mig máli? Annars flýgur lífið áfram og við getum farið að upplifa þreytu, streitu og jafnvel vanlíðan, einfaldlega af því að við erum ekki að gefa okkur rými fyrir það sem nærir og heldur okkur gangandi. Þ.e. að gefa sér tíma fyrir sitt eldsneyti. Næsta skref, að setja þetta í dagatalið Næsta skrefið getur verið að setja þessa þætti inn í dagatalið þitt. Á einn eða annan hátt, að vera búin að setja upp einhver konar skipulag eða fyrirfram áætlun sem eykur líkurnar á því að þú munir eftir þessum mikilvægu þáttum í lífinu þínu og gefur þér rými fyrir það. Sem dæmi ef þú tekur frá tíma í dagatalinu fyrir: hreyfingu/einveru/félagsveru þá getur þú skráð það eins og eitt ,,atriði” eða ,,fund”. Í framhaldi er þá mikilvægt að líta á þennan tíma sem frátekinn. Þ.e. að fylla ekki inn í hann með öðru atriði eða líta á þetta sem lausan tíma. Það getur verið gott að gera þetta vikulega á sunnudögum, þar sem þú ferð yfir listann af þínum atriðum sem næra þig og skipta þig máli og setur pláss fyrir það inn í vikuna. Síðan getur þú á hverjum morgni einfaldlega litið yfir daginn þinn til að minna þig á þessa þætti og gefið þér tíma fyrir þá. Ég hvet þig til að prófa þetta og ekki gefast upp þótt það verði stundum erfitt að ,,vernda” þennan tíma og auðvelt að setja annað fram yfir. Þú munt finna muninn á þér þegar þú finnur að þetta verður hluti af rútínu þinni og þú gefur þér reglulega tíma fyrir það sem gefur þér orku og heldur þér gangandi. Höfundur er doktor í lífeðlislegri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Þóra Sveinsdóttir Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun