Hulda Clara best í lokin og grátlega nærri bráðabana Sindri Sverrisson skrifar 13. mars 2026 15:15 Hulda Clara Gestsdóttir hafnaði í 4. sæti í Jóhannesarborg í dag. Golf.is Kylfingurinn Hulda Clara Gestsdóttir lék best allra á þriðja og síðasta hring golfmóts í Jóhannesarborg í Suður-Afríku sem lauk í dag. Hún var aðeins einu höggi frá því að fara í bráðabana um sigur á mótinu.
Hulda hafnaði í fjórða sæti mótsins sem nefnist Jabra Ladies Classic og er hluti af Sunshine atvinnumannamótaröðinni. Hún lék á 67 höggum í dag, fimm höggum undir pari, eftir að hafa fengið sex fugla á hringnum. Hún fékk hins vegar skolla á átjándu holu og missti þar með af því að fara í bráðabana með þremur efstu kylfingunum. Hulda hafði áður leikið fyrsta hringinn á -3 höggum en annan hringinn á pari. Það var hin franska Lois Lau sem vann þriggja manna bráðabanann og þar með mótið. Andrea Bergsdóttir varð í 24.-27. sæti á +2 höggum, eftir að hafa leikið lokahringinn á -2 höggum og farið upp um ellefu sæti. Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék fyrstu tvo hringina báða á 76 höggum, eða +4 höggum hvorn, og var fjórum höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Íslenska þríeykið spilar aftur í Jóhannesarborg í næstu viku.
Golf Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Markvörður Eista meiddur Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira