Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Freyja Þórisdóttir skrifar 14. mars 2026 11:12 Brynja mun ekki styðja á nokkurn hátt við Framsókn í komandi kosningum. Vísir/Vilhelm Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt.
Þessu segir Brynja frá í samtali við fréttastofuna. Hún hafi gengið til liðs við Framsókn vegna áherslu þeirra á málefni barna og fjölskyldna. Brynja var varamaður á Alþingi á síðasta kjörtímabili og leiddi síðan lista flokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum í Garðabæ. „Það var mikið átak að ná inn manni í bæjarstjórn eftir 12 ára hlé og ég hef sinnt þessu verkefni af alúð og fullum heilindum en ég hef líka lært mikið á þessum tíma. Ég brenn fyrir málefnum Garðabæjar og þess vegna gaf ég aftur kost á mér til að leiða framboðslista flokksins í komandi kosningum,“ segir Brynja. Hún hafi svo nú nýlega fengið símtal frá formanni uppstillingarnefndar en hann bar henni fréttir sem henni brá heldur mikið við. „Eftir langan umhugsunarfrest uppstillingarnefndar fékk ég símtal frá Sigurjóni Jónssyni, formanni nefndarinnar og nýráðnum framkvæmdastjóra Framsóknar, þar sem mér var tjáð að ákveðið hefði verið að víkja mér sem oddvita og stilla þess í stað upp varamanni mínum í oddvitasætið,“ segir Brynja. „Mér var brugðið við þessar fréttir og er sár yfir þeim vinnubrögðum, óheilindum og klíkuskap sem þarna birtist,“ bætir Brynja við. Varamaðurinn sem um ræðir er fyrrverandi landsliðsmaðurinn í körfubolta og varabæjarfulltrúinn Hlynur Bæringsson. Brynja segist velta því fyrir sér hvort þau gildi sem hún hafi staðið við eigi ekki lengur hljómgrunn hjá flokknum. Styður ekki á nokkurn hátt við flokkinn „Ég hef því ákveðið að ég muni því hvorki taka sæti á lista Framsóknar né styðja á nokkurn hátt við flokkinn í komandi kosningum.“ Brynja segist hafa fengið mörg símtöl og skilaboð síðastliðna daga frá samstarfsmönnum sínum í bæjarstjórn Garðabæjar undanfarin 4 ár ásamt fjölmörgum Framsóknarmönnum um allt land. Hún sé þakklát og hrærð yfir stuðningnum. Hún mun það sem eftir lifir kjörtímabils vinna sem óháður bæjarfulltrúi. „Mig langar að þakka þeim íbúum Garðabæjar sem studdu mig í síðustu kosningum. Ég mun það sem eftir lifir kjörtímabils vinna fyrir ykkur sem óháður bæjarfulltrúi,“ segir Brynja.
Garðabær Framsóknarflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira