Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. mars 2026 18:36 Efstu sex frambjóðendurnir á lista Samfylkingarinnar í Garðabæ. Kjartan Atli Kjartansson fjölmiðlamaður og þjálfari leiðir framboðslista Samfylkingarinnar í Garðabæ. Listinn var samþykktur á fjölmennum félagsfundi nú fyrir stundu.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir jafnframt að Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir fjármála-og rekstrarstjóri verði í öðru sæti listans og Rakel Margrét Viggósdóttir kennari og deildarstjóri í því þriðja. „Þessi hugmynd, að ég myndi leiða Samfylkinguna í Garðabæ, kom upp fyrr á þessu ári. Strax á fyrsta fundi fann ég hvað fólkið í flokknum hefur mikinn metnað fyrir Garðabæ. Óhætt er að segja að ég geri slíkt hið sama,“ er haft eftir Kjartani Atla í tilkynningunni. „Það er að sjálfsögðu mikill heiður að fá að vera í stafninum og leiða þessa mögnuðu liðsheild. Listinn hefur á að skipa frábærri blöndu af kraftinum sem fylgir nýju fólki í stjórnmálum og reynslu þeirra sem þekkja pólitíkina, en á listanum má finna fyrrum ráðherra, bæjarstjóra og bæjarfulltrúa í fleirtölu. Við erum með sterka tengingu við skólakerfið í bænum, íþróttastarfið og byggðarkjarnana þrjá.“ Hann segir jafnframt að framboðið muni á næstu vikum kynna stefnumál sín fyrir bæjarbúum. Lögð verði áhersla á skynsemi og metnaðarfulla nálgun í að bæta nærumhverfið. Frambjóðendum þyki vænt um Garðabæ. Vilmar Pétursson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, er í fjórða sæti listans og hinn 23 ára Ögmundur Árni Sveinsson í því fimmta, en viðskiptafræðineminn Ögmundur er innfæddur Garðbæingur sem hefur þjálfað börn og unglinga bæjarins í körfubolta við einstaklega góðan orðstír. Í sjötta sætinu er Katrín Júlíusdóttir, fyrrum fjármálaráðherra og iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Listinn í heild sinni: 1. Kjartan Atli Kjartansson, stjórnmálafræðingur, fjölmiðlamaður, þjálfari og rithöfundur 2. Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, fjármála- og rekstrarstjóri 3. Rakel Margrét Viggósdóttir, kennari og deildarstjóri 4. Vilmar Pétursson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun 5. Ögmundur Árni Sveinsson, viðskiptafræðinemi og þjálfari 6. Katrín Júlíusdóttir, f.v. ráðherra, ráðgjafi og rithöfundur 7. Rósanna Andrésdóttir, grunnskólakennari og alþjóðafræðingur 8. Bjarni Thor Kristinsson, óperusöngvari, menningarstjórnandi og leikstjóri 9. Guðfinna Guðmundsdóttir, f.v. bæjarfulltrúi , matreiðslumeistari og menntunarfræðingur 10.Ragnheiður Hergeirsdóttir, f.v. bæjarstjóri, félagsráðgjafi og lektor við H.Í. 11.Freyja Kvaran, stjórnmálafræðinemi 12.Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri HSÍ 13.Ásdís Magnúsdóttir, lögfræðingur 14.Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri 15.Stefán Arinbjarnarson, f.v. íþrótta- og tómstundafulltrúi Álftaness, kennari og þjálfari 16.Gréta Ósk Óskarsdóttir, bókmenntafræðingur og bætiefnaráðgjafi 17.Birta Mjöll Antonsdóttir, launaráðgjafi 18.Heiða Mist Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur 19.Kristján Sveinbjörnsson, fv. bæjarfulltrúi, rafverktaki, hönnuður og byggingastjóri 20.Rafn Svanur Oddsson, f.v. slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og vélvirki 21.Edda Gíslrún Kjartansdóttir, grunnskólakennari 22.Guðmundur Andri Thorsson, f.v. alþingismaður og rithöfundur
Garðabær Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira