Mannúðlegt, skynsamlegt og betri meðferð á fjármunum ríkisins 17. mars 2026 07:16 Fangelsismál eru í eðli sínu prófsteinn á styrk réttarríkisins. Þau snúast ekki aðeins um refsingar heldur um hvernig við tryggjum að kerfið virki fyrir samfélagið í heild, fyrir þau sem starfa innan þess og fyrir þau sem afplána dóma. Hvernig tryggjum við að afplánun sé ekki aðeins frelsissvipting heldur líka raunverulegt tækifæri til uppbyggingar, þannig að einstaklingar snúi aftur til samfélagsins betur í stakk búnir en áður? Í umræðu um fangelsismál er freistandi að horfa aðeins til bráðra áskorana: yfirfullra rýma, mönnunar og óviðunandi húsakosts sem endurspeglast vel í úttektum Ríkisendurskoðanda frá 2023 og í eftirfylgniskýrslu sem kom út nýlega. En ef við ætlum að ná árangri þá þurfum við að horfa á kerfið í heild, hvernig það er byggt upp, hvernig það styður við endurhæfingu og hvernig það dregur úr líkum á endurteknum brotum og að fólk snúi aftur í fangelsi. Í því samhengi skiptir fyrirhuguð bygging nýs fangelsis á Stóra-Hrauni miklu máli. Það er ekki aðeins innviðaverkefni heldur stefnumarkandi ákvörðun um framtíð fangelsiskerfisins. Í sérstakri umræðu um fangelsismál sem ég óskaði eftir og fór fram á þinginu í gær greindi dómsmálaráðherra frá því að undirbúningur byggingar nýs fangelsis að Stóra-Hrauni er hafinn. Útboð vegna jarðvegsvinnu hefst á næstu vikum og framkvæmdirnar svo í kjölfarið. Öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni verður með samtals 128 afplánunarrými þar sem verður hægt að skilja fanga betur að, sem er mikilvægt bæði fyrir öryggi fanganna sjálfra sem og starfsfólks. Í nýju fangelsi verður hægt að sinna kennslu og almennri endurhæfingu fanga betur en í dag. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, sagði einnig frá því að til stæði að stækka opna fangelsið að Sogni, meðal annars í því skyni að fjölga afplánunarrýmum fyrir konur, og vonast hún til að framkvæmdir hefjist með vorinu. Til þess að bregðast við erfuðu ástandi í fangelsum landsins og mjög löngum biðlista er ráðherra að grípa til aðgerða sem snúa að erlendum föngum sem hafa engin tengsl við landið. Unnið er að því að stytta tímabundið þann hluta dóma sem þessir aðilar þurfa að afplána og brottvísa um leið og þeim lýkur af landi brott. Einnig er í gangi endurskoðun á verkferlum varðandi flutning dæmdra manna á milli ríkja og afplánun fanga í heimaríki á grundvelli alþjóðlegra samninga með það að markmiði að gera ferlið raunhæfara og skilvirkara en nú er. Dómsmálaráðuneytið hefur þegar sent erlendum stjórnvöldum beiðni um að taka við föngum, nokkuð sem hefur ekki verið gert í meira en áratug, svo ríkisstjórnin er að taka stór skref til að létta á kerfinu. Ég hef mikinn áhuga á þessum málaflokki, því í mínum augum er hann ákveðin endastöð þegar velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra hefur brugðist. Undanfarið höfum við fengið að sjá ólíkar birtingarmyndir brotalama í því „kerfi“ sem á að grípa börn þegar illa fer og helst áður en illa fer. Við sjáum málið um fósturheimilin og sterkar vísbendingar um að umgjörð þeirra mála sé ekki eins og best er á kosið í dag. Við sjáum og heyrum vel umræðuna um meðferðarheimili fyrir börn í geð- og/eða vímuefnavanda. Ef við erum ekki með sterkt velferðarumhverfi sem grípur börnin og foreldra þeirra þá verður meira álag í fangelsum landsins. Það er kominn tími á að við sem samfélag förum að axla alvöru ábyrgð á meðborgurum okkar sem einhverra hluta vegna eiga erfiðara með að fóta sig í samfélaginu. Sýnum þeim virðingu sem allar manneskjur eiga skilið og veitum alvöru aðstoð svo þau fái raunveruleg tækifæri til þess að byggja sér upp gott líf. Fangelsismálin eru sannarlega þar á meðal og þrátt fyrir óásættanlegan húsnæðisvanda sem hefur fengið að byggjast upp í alltof langan tíma, þá getum við ekki beðið lengur með að móta endurhæfingarstefnu fyrir íslenska fangelsiskerfið. Stefnu með skýrum og mælanlegum markmiðum um þátttöku fanga í námi, starfsþjálfun og meðferð ásamt skilgreindum árangursviðmiðum á borð við lækkaða endurkomutíðni og bættri aðlögun að samfélaginu að lokinni afplánun. Stór alþjóðleg rannsókn sem tók saman niðurstöður úr tugum rannsókna sýnir að markviss endurhæfing, menntun og meðferð í fangelsum draga verulega úr líkum á endurteknum afbrotum og endurkomu í fangelsi, eða um 43%. Áhersla á endurhæfingu, menntun og meðferð fanga er ekki aðeins mannúðleg nálgun heldur einfaldlega skynsamleg stefna í þágu samfélagsins alls. Spurningin er því ekki hvort við eigum að leggja áherslu á endurhæfingu heldur hvernig við gerum það sem best. Það er betra fyrir einstaklinginn, betra fyrir öryggi samfélagsins og betri meðferð á fjármunum ríkisins. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ása Berglind Hjálmarsdóttir Samfylkingin Fangelsismál Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar