Getur mataræði og lífsstíll valdið stoðkerfisverkjum? Anna Lind Fells skrifar 17. mars 2026 14:02 Þegar verkir verða hluti af daglegu lífi Verkir eru orðnir einn algengasti fylgifiskur nútímalífs. Á heimsvísu er áætlað að um 27,5% fólks glími við langvinna verki. Fyrir marga verða verkirnir smám saman hluti af daglegu lífi, eitthvað sem þarf einfaldlega að lifa með. Algengasta viðbragðið er að grípa til verkjalyfja. Rannsóknir sýna þó að langtímanotkun sterkra lyfja, svo sem ópíóíða, hefur takmarkaðan árangur við langvinnum verkjum og getur jafnframt haft í för með sér alvarlegar aukaverkanir, þar á meðal fíkn, hormónaójafnvægi, ójafnvægi í þörmum og þunglyndi. En hvað ef orsök verkjanna liggur ekki eingöngu í stoðkerfinu, heldur líka í lífeðlisfræði líkamans, mataræði og lífsstíl? Stoðkerfið er ekki einangrað Stoðkerfið – liðir, vöðvar, sinar og bandvefur – starfar ekki í einangrun. Það bregst stöðugt við breytingum í innra umhverfi líkamans, svo sem bólguástandi, næringarástandi, hormónajafnvægi og efnaskiptum. Því eru langvinnir verkir oft ekki eingöngu staðbundið vandamál, heldur endurspegla þeir undirliggjandi líffræðilega ferla. Langvinn bólga og verkir Einn mikilvægasti undirliggjandi þátturinn þegar kemur að verkjum er langvinn, væg bólga í líkamanum. Slík bólga getur þróast smám saman, meðal annars vegna mataræðis sem einkennist af sykri, unnum matvælum, iðnvæddum jurtaolíum og mikilli koffínneyslu. Rannsóknir sýna að einstaklingar sem glíma við langvinna stoðkerfisverki eru líklegri til að fylgja slíku mataræði og jafnframt líklegri til að vera með offitu og óhagstætt efnaskiptaástand. Sífellt fleiri rannsóknir benda einnig til þess að mataræði geti haft bein áhrif á kerfisbundna bólgu í líkamanum, en skynjun sársauka tengist oft virkni bólgumiðla og bólgusvörun. Ákveðin matvæli geta hjá sumum einstaklingum kallað fram ónæmisviðbrögð sem stuðla að bólgu, þar á meðal prótein úr kúamjólk, hveiti, glúteni og sojabaunum. Þar sem fæðuóþol og fæðuofnæmi geta verið erfið í greiningu, eru svokölluð útilokunarmataræði oft notuð til að greina viðbrögð við mat og draga úr bólgu tengdri ákveðnum fæðutegundum. Mataræði sem hefur hátt gildi á svokölluðum Dietary Inflammatory Index hefur verið tengt aukinni hættu á liðverkjum, stirðleika og mjóbaksverkjum. Á hinn bóginn hefur bólguminnkandi mataræði, svo sem Miðjarðarhafsmataræði, verið tengt minni verkjum og hægari framgangi slitgigtar. Þarmaflóran – áhrif langt út fyrir meltingu Í þörmum mannsins búa trilljónir örvera sem hafa áhrif á ónæmiskerfið, efnaskipti og jafnvel taugakerfið. Þetta samspil er oft nefnt “microbiota-gut-brain axis” eða örveru–þarma–heila ásinn. Ójafnvægi í þarmaflóru, svokallað dysbiosis, getur aukið gegndræpi þarmaveggjarins þannig að bakteríur og efnaskiptaafurðir þeirra berist út í blóðrásina. Þegar það gerist bregst ónæmiskerfið við og kveikir á bólgusvörun í líkamanum, sem getur aukið verkjanæmi og stuðlað að langvinnum verkjum. Rannsóknir hafa jafnvel bent til beinna tengsla milli þarmaflóru og stoðkerfisverkja. Í hollenskri rannsókn komu fram marktæk tengsl milli aukins hlutfalls baktería af ættkvíslinni Streptococcus í þörmum og meiri alvarleika slitgigtar í hné, ásamt aukinni verkjaupplifun. Í annarri rannsókn tengdist tilvist lipopolysaccharides (LPS) - bólguhvetjandi efna úr Gram-neikvæðum bakteríum - aukinni bólgu og verri einkennum í hnélið. Þegar gegndræpi þarmaveggjarins eykst geta þessi efni borist út í blóðrásina og ýtt undir bólguferli í líkamanum. Hvatberar – orkuframleiðsla og verkir Hvatberar, orkuframleiðslueiningar frumnanna, gegna lykilhlutverki í starfsemi taugakerfis og vöðva. Truflun á starfsemi þeirra, til dæmis vegna bólgu og oxunarálags, getur haft áhrif á orkuframleiðslu, viðgerð vefja og jafnvel skynjun sársauka. Slík truflun hefur verið tengd bæði taugaverkjum og bólgutengdum verkjum Í ljósi þessa hefur aukin áhersla verið lögð á lífsstílsþætti sem styðja við starfsemi hvatbera, þar sem næring gegnir lykilhlutverki. Sérstaklega hefur verið bent á mikilvægi bólguminnkandi og næringarríks mataræðis með lágan blóðsykursstuðul, án glútens og með takmörkuðu magni kornvara, þar sem lögð er áhersla á hágæða fitugjafa. Rannsóknir benda jafnframt til þess að tímabundin fasta, þegar hún er sniðin að einstaklingsbundnum þörfum, geti bætt starfsemi hvatbera með því að örva nýmyndun þeirra og bæta orkuefnaskipti. Regluleg hreyfing getur einnig haft veruleg jákvæð áhrif með því að auka fjölda hvatbera, bæta súrefnisnýtingu og draga úr oxunarálagi, sem getur stuðlað að minni verkjum. Vöðvaheilsa og næring Næring hefur einnig afgerandi áhrif á vöðvaheilsu, sem er órjúfanlegur hluti stoðkerfisins. Vöðvarýrnun, eða sarcopenia, tengist minnkandi vöðvastyrk, auknum verkjum og skertum lífsgæðum. Rannsóknir benda til þess að próteinríkt mataræði, ásamt lykilnæringarefnum eins og D-vítamíni, omega-3 fitusýrum, kollageni, kreatíni og góðgerlum, geti dregið úr vöðvarýrnun og stutt við enduruppbyggingu vefja. Skortur á þessum þáttum getur hins vegar aukið líkur á langvinnum verkjum. Af hverju breytist líkaminn þegar mataræðið breytist? Margir upplifa verulegan bata á verkjum þegar þeir breyta mataræði sínu, til dæmis með því að fara á mjög takmarkað mataræði eins og carnivore (kjötmataræði). Skýringin liggur sjaldnast í einni „töfralausn“, heldur í því að slíkar breytingar fela oft í sér að bólguhvetjandi matvæli, unnar vörur og mögulegir ofnæmisvaldar eru fjarlægðir. Jafnframt verður blóðsykur stöðugri og innra jafnvægi líkamans batnar. þegar líkaminn fær réttar aðstæður Stoðkerfisverkir eru sjaldnast einfalt vandamál sem á rætur sínar eingöngu í vöðvum eða liðum. Þeir endurspegla oft flókið samspil bólgu, þarmaheilsu, efnaskipta, orkuframleiðslu og næringarástands. Því er ekki óeðlilegt að breytingar á mataræði og lífsstíl geti haft djúpstæð áhrif á sársauka. Lokaorð Þegar við horfum á líkamann sem heildstætt kerfi fremur en samansafn aðskildra eininga, opnast ný sýn á orsakir og meðferðarleiðir. Verkjasaga einstaklings helst oft í hendur við innra jafnvægi líkamans. Lífsstílsþættir á borð við næringarríkt mataræði, reglulega hreyfingu og í sumum tilvikum tímabundna föstu geta stutt við starfsemi hvatbera og þar með haft jákvæð áhrif á verki. Höfundur er Functional Medicine heilsuráðgjafi.hjá fyrirtækinu Holistic ehf Heimild Heimild Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Anna Lind Fells Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar Skoðun „Hrútskýring“ á fiskveiðióstjórn Íslands Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Greinarstúfur um tillögur stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlitin í landinu Ásdís H. Bjarnadóttir skrifar