Stóra Hringbrautarmálið Halldór Auðar Svansson skrifar 18. mars 2026 15:33 Í dag þegar þessi orð eru skrifuð lenti ég í kunnuglegu atviki. Við útdyrnar í stigaganginum þar sem ég bý stóð manneskja með ferðatösku sem ætlaði sér að fara á Landspítalann við Hringbraut. Nágranni minn var að aðstoða hana við að hringja á leigubíl til að komast þangað, því þó að við búum vissulega við sömu götu og Landspítalinn stendur við þá eru um þrír kílómetrar á milli okkar. Það getur verið langur vegur fyrir fólk í spítalaþörf að ganga með töskur. Ég var fljótur að átta mig á hvað væri í gangi af því sem fyrr segir þá eru svona atvik mjög kunnuleg á Hringbraut 101. Það sem er í gangi er sumsé að mörg tölvukerfi, þar með talið vinsælasta kortakerfi heimsins, Google Maps, virðast halda að Landspítalinn sé við Hringbraut 101 – og vísa því gjarnan fólki þangað þegar það vill komast á spítalann. Svo gerist það reglulega að hingað berast bréf, gjarnan stimpluð rækilega sem trúnaðarmál, sem ætluð eru starfsfólki Landspítalans. Við og við er bankað upp á og boðið upp á pizzur sem inniliggjandi sjúklingar hafa pantað sér. Í stuttu máli þá berast hingað fólk og hlutir sem ætluð eru Landspítalanum. Af hverju gerist þetta? Jú, af því að Landspítalinn við Hringbraut er ekki á götunúmeri. Hann er bara Landspítalinn, Hringbraut. Hann er hins vegar í póstnúmeri 101 og það er það sem ruglar gjarnan þessi tölvukerfi – og fólk. Þau hafa ríka tilhneigingu til að grípa póstnúmerið sem götunúmer ef þau vita ekki betur. Að sjálfsögðu er þessi tilhneiging ríkust hjá innflyjendum sem einmitt vita ekki endilega betur. Þeir treysta á þessi kerfi til að segja þeim til. Allt veldur þetta smá ónæði hér á 101 en verst er þetta fyrir fólk sem fer fýluferðir á leiðinni á spítala. Það er varla hægt að ímynda sér verri erindi til að upplifa óvæntar uppákomur og flækjur þegar maður er að sinna þeim. Þess vegna hefur mér alllengi verið umhugað um að að leysa þetta og við og við reynt að fá t.d. skráningar á Google Maps leiðréttar, þannig að Landspítalinn sé skráður á sinn rétta stað. Allt kemur fyrir ekki; þessar skráningar haggast ekki og það er kannski erfitt að fá alþjóðleg stórfyrirtæki til að veita svona smáatriðum athygli. Það sem ég hef hins vegar áttað mig á núna er að það er til lausn á þessu, frekar einföld og almenn. Og nei, hún er ekki sú að fækka innflytjendum, eins og virðist vera í pólitískri tísku núorðið sem lausn á öllum vanda. Lausnin er sú að Landspítalinn við Hringbraut hreinlega taki upp götunúmer svo tryggt sé að alltaf sé hægt að rata þangað. Ég, líkt og Indriði í Fóstbræðrum, veit hins vegar ekki alveg „Hver á laga það“ þannig að ég vil bara hér með varpa þessu vandamáli frá mér og út í samfélagið. Þá get ég allavega sagt á dánarbeðinu að ég hafi reynt. Vonandi taka þau sem geta tekið þetta erindi til sín vel í það og finna lausn. Höfundur er formaður húsfélagsins að Hringbraut 101 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldór Auðar Svansson Landspítalinn Mest lesið Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar