Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. mars 2026 08:15 Háskólanemar bíða í röð eftir að fá bólusetningu við heilahimnubólgu. AP/Gareth Fuller Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa gefið út viðvörun og hvatt heilbrigðisstarfsmenn um að vera á varðbergi gagnvart einkennum heilahimnubólgu.
Viðvörunin var gefin út í kjölfar heilahimnubólgufaraldurs í Kent en 20 hafa greinst og tveir látist, táningur og 21 árs háskólanemi. Hér má lesa um heilahimnubólgu á Heilsuveru. Heilbrigðisöryggisyfirvöld vinna nú að því að reyna að finna út úr því hvers vegna umrædd sýking breiddist hratt út en hún er talinn hafa átt uppruna sinn á skemmtistað í Canterbury. Þá er talið að smit hafi átt sér stað á heimavistum Háskólans í Kent. Til stendur til að bólusetja um það bil 5.000 nemendur við háskólann en um 8.400 einstaklingar hafa þegar fengið sýklalyf í forvarnarskyni. Þeirra á meðal eru háskólanemar og allir þeir sem sóttu skemmtistaðinn dagana 5. til 7. mars. Samkvæmt Vísindavefnum er heilahimnubólga bólga í himnunum sem umlykja heila og mænu. Sýkingar eru algengasta orsök bólgunnar. Dæmigerð einkenni bráðrar heilahimnubólgu eru hiti, hnakkastífleiki og skert meðvitund. Hún er meðhöndluð með sýklalyfjum. „Heilahimnubólga af völdum baktería er ein alvarlegasta sýking sem til er, þar sem gangur sjúkdóms er oft mjög hraður, og því er mikilvægt að þekkja einkenni sjúkdómsins og bregðast hratt við. Batahorfur hafa gjörbreyst með tilkomu sýklalyfja um miðja síðustu öld og enn frekar eftir innleiðingu bólusetninga í börnum gegn helstu meinvöldum,“ segir á Vísindavefnum.
Bretland England Heilbrigðismál Bólusetningar Háskólar Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Sjá meira