Samstarf um grænni framtíð í borginni okkar Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar 19. mars 2026 14:30 Hluti af stærstu áskorunum samtímans fjalla um heilbrigði vistkerfa, umgengni okkar manna við þau og hvernig við stuðlum að sjálfbærri þróun eins og kemur fram í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Græna plani Reykjavíkurborgar. Við þurfum að leita leiða til þess að svara þessum áskorunum sem gera okkur kleift að eiga samstarf um lausnir sem virka. Hvernig gerum við það? Nýjar og árangursríkari leiðir með félagslegri nýsköpun Til þess að ná markmiðum sjálfbærrar þróunar hefur verið hvatt til félagslegrar nýsköpunar út frá markmiðum verkefnisins þar sem tengsl milli umhverfislausna og samsköpunar með íbúum eru könnuð. Félagsleg nýsköpun mætir félagslegum þörfum fólks á sama tíma og fundnar eru nýjar og árangursríkari leiðir í leit að lausnum. Áherslan á staðbundinn veruleika byggir á rannsóknum um félagsauð sem benda til þess að það sé mikilvægt að fólk eigi hlutdeild í að hanna raunhæfar lausnir sem virka. Ein þeirra sem gert hefur rannsóknir á þessu sviði er hagfræðingurinn Maríana Mazzucato. Hún hefur bent á að til að leysa úr flóknum áskorunum sé nauðsynlegt að starfa með íbúum samfélaga. „Evrópusambandið getur til dæmis ekki fyrirskipað hvernig borgir verða kolefnishlutlausar: það verða borgirnar sjálfar, þátttakendur þeirra og samtök að uppgötva“ segir hún meðal annars í bókinni Mission Economy. A moonshot guide to changing capitalism. Það er mikilvægt að við látum okkur nærumhverfið varða með samstarfi um að þróa það á þann hátt að borgin okkar verði enn lífvænlegri og tökum þátt í að svara hnattrænum áskorunum líka með staðbundnum lausnum. Fyrir áhugasama þá vísa ég til verkefnis sem starfrækt er í þessum anda og er kennt við grænar borgir eða GreenInCities og er ætlað að stuðla að umhverfisvænum lausnum með þátttöku íbúa. Höfundur er framkvæmdastjóri Suðurmiðstöðvar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Hluti af stærstu áskorunum samtímans fjalla um heilbrigði vistkerfa, umgengni okkar manna við þau og hvernig við stuðlum að sjálfbærri þróun eins og kemur fram í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Græna plani Reykjavíkurborgar. Við þurfum að leita leiða til þess að svara þessum áskorunum sem gera okkur kleift að eiga samstarf um lausnir sem virka. Hvernig gerum við það? Nýjar og árangursríkari leiðir með félagslegri nýsköpun Til þess að ná markmiðum sjálfbærrar þróunar hefur verið hvatt til félagslegrar nýsköpunar út frá markmiðum verkefnisins þar sem tengsl milli umhverfislausna og samsköpunar með íbúum eru könnuð. Félagsleg nýsköpun mætir félagslegum þörfum fólks á sama tíma og fundnar eru nýjar og árangursríkari leiðir í leit að lausnum. Áherslan á staðbundinn veruleika byggir á rannsóknum um félagsauð sem benda til þess að það sé mikilvægt að fólk eigi hlutdeild í að hanna raunhæfar lausnir sem virka. Ein þeirra sem gert hefur rannsóknir á þessu sviði er hagfræðingurinn Maríana Mazzucato. Hún hefur bent á að til að leysa úr flóknum áskorunum sé nauðsynlegt að starfa með íbúum samfélaga. „Evrópusambandið getur til dæmis ekki fyrirskipað hvernig borgir verða kolefnishlutlausar: það verða borgirnar sjálfar, þátttakendur þeirra og samtök að uppgötva“ segir hún meðal annars í bókinni Mission Economy. A moonshot guide to changing capitalism. Það er mikilvægt að við látum okkur nærumhverfið varða með samstarfi um að þróa það á þann hátt að borgin okkar verði enn lífvænlegri og tökum þátt í að svara hnattrænum áskorunum líka með staðbundnum lausnum. Fyrir áhugasama þá vísa ég til verkefnis sem starfrækt er í þessum anda og er kennt við grænar borgir eða GreenInCities og er ætlað að stuðla að umhverfisvænum lausnum með þátttöku íbúa. Höfundur er framkvæmdastjóri Suðurmiðstöðvar.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar