Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2026 08:49 Hanna Katrín Friðriksson er atvinnuvegaráðherra. Ný stofnun mun meðal annars hafa eftirlit með dýravelferð. Vísir Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verða lagðar niður og starfsemi þeirra sameinuð í nýrri Stofnun atvinnuveganna, ef frumvarp atvinnuvegaráðherra nær fram að ganga. Matvælaeftirlit færist frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaganna til nýrra stofnunar.
Frumvarpið var lagt fram á þingi í gær en samkvæmt því mun stofnunin „starfa að stjórnsýsluverkefnum á sviði sjávarútvegs, stjórnar fiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvælamála, dýravelferðar og heilbrigði dýra og plantna svo sem nánar er kveðið á um í lögum“. Miðað er við að lögin taki gildi 1. janúar 2027. Frá og með þeim degi verða staða forstjóra Matvælastofnunar, fiskistofustjóra, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis, sem og öll önnur störf hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs lögð niður. „Starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, annað en forstjóri Matvælastofnunar, fiskistofustjóri og forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs, sem er í starfi við gildistöku laga þessara, sinnir þeim verkefnum sem færast til nýrrar stofnunar samkvæmt lögum og uppfyllir hæfisskilyrði og önnur lögbundin skilyrði til starfsins, skal eiga forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna þegar hún tekur til starfa 1. janúar 2027,“ segir í ákvæðum til bráðabirgða. Þá mun sama gilda um starfsfólk heilbrigðisnefnda sveitarfélaga sem unnið hefur við eftirlit með matvælum. Ráðherra skipar forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu hefur umfangsmikil greiningarvinna átt sér stað, þar sem til skoðunar var að samþætta rekstur umræddra stofnanna. „Helsti ábati þess að sameina stofnanirnar er heildstæð nálgun við eftirlit á sviði matvæla og fiskveiða, en með sameinaðri stofnun verður unnt að samræma verklag og ferla, einkum varðandi leyfisveitingar og eftirlit. Það eykur gagnsæi, dregur úr skrifræði og bætir þjónustu,“ segir í greinargerðinni.
Dýr Matvælaframleiðsla Sjávarútvegur Fiskeldi Landbúnaður Heilbrigðismál Heilbrigðiseftirlit Dýraheilbrigði Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Sjá meira