Uppbygging Hveragerðis og þróun innviða Birgitta Ragnarsdóttir skrifar 26. mars 2026 15:31 Þegar ég og maðurinn minn tókum þá ákvörðun að flytja í Hveragerði kom það á óvart hjá okkar nánustu. Staðan á fasteignamarkaðinum var einfaldlega þannig að fjögurra manna fjölskylda átti erfitt með að standast greiðslumat fyrir fasteign á höfuðborgarsvæðinu. Við leituðum því nýrra leiða og fundum framtíðarheimili í Hveragerði. Sjálf er ég að mestu alin upp í Vesturbæ Reykjavíkur og maðurinn minn í Seljahverfinu í Breiðholti. Bæði höfum við þó alltaf sótt í útiveru, ég í hestamennsku og hann í jeppaferðir. Það heillaði okkur því strax að vera svona nálægt náttúrunni, með fjöllin, dalina og kyrrðina innan seilingar. Eitt af því sem við heyrðum oft áður en við fluttum austur fyrir fjall var spurningin: „Verður ekki erfitt að vera svona langt frá baklandinu?“ En reynslan hefur verið þveröfug því í Hveragerði eignuðumst við okkar eigið bakland. Hér er öflugt samfélag fólks sem margt hvert hefur flust hingað ekki alls fyrir löngu og margir sækja vinnu út fyrir bæinn. Það hefur skapað einstaka samkennd, félagsleg tengsl og bakland þar sem vel er tekið á móti nýjum íbúum. Ég hefði ekki trúað því að á fullorðinsárum myndi ég kynnast fólki sem yrðu mínir nánustu vinir, eða að félagslíf mitt gæti orðið jafn ríkt og raun ber vitni. Það er eitthvað sérstakt við lífið í litlu samfélagi þar sem fólk fylgist hvert með öðru og veitir alltaf stuðning þegar á þarf að halda. Lífsgæðin sem fylgja því að búa í Hveragerði eru ómetanleg. Hér er minna álag, minni umferð og meiri tími fyrir allt það helsta sem skiptir máli í lífinu. En þessi lífsgæði eru ekki sjálfgefin – þau byggjast á því að við tökum meðvitaðar ákvarðanir um það hvernig við viljum sjá bæinn okkar þróast. Uppbygging þarf að vera í takt við þróun innviða Hveragerði hefur vaxið hratt á undanförnum árum og mun væntanlega gera það áfram. Sá vöxtur getur skapað ýmis tækifæri en aðeins ef við stöndum rétt að málum. Það skiptir sköpum að uppbygging sé alltaf í takt við þróun innviða. Grunnskólar, leikskólar, velferðar- og heilbrigðisþjónusta, samgöngumannvirki og aðstaða til íþrótta og tómstunda þurfa að haldast í hendur við fjölgun íbúa. Annars er hætt við að grafið verði undan þeim lífsgæðum sem hafa laðað fólk til bæjarins. Á sama tíma megum við aldrei missa sjónar á því sem gerir Hveragerði að fyrirmyndarsamfélagi þar sem fólki finnst gott að búa. Náttúruperlur allt í kring eru ekki aðeins sjálfsagður bakgrunnur, sem umvefur okkur íbúa, heldur mikilvægur hluti af sjálfsmynd bæjarfélagsins. Gönguleiðirnar, gróðurinn, jarðhitinn og nálægðin við ósnortna náttúru eru verðmæti sem ekki er auðveldlega hægt að endurskapa ef þau tapast. Þess vegna þarf allt skipulag og uppbygging í bænum að taka mið af verndun á þeim ómetanlegu náttúruperlum sem höfum svo greiðan aðgang að, ekki aðeins til skamms tíma heldur fyrir komandi kynslóðir. Við megum aldrei fórna því sem skiptir máli þegar ákvarðanir eru teknar í uppbyggingu og skipulagsmálum Hveragerðis. Er tilbúin að leggja mitt af mörkum Það sem fram hefur komið hér að framan er einmitt ástæða þess að ég hef ákveðið að bjóða mig fram fyrir S-listann í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til að tryggja að uppbygging Hveragerðis verði alltaf á skynsamlegum nótum. Það er best gert með því að setja mikilvæga innviði í forgang og hlúa stöðugt að náttúrunni sem gerir bæinn okkar svo einstakan. Ég vil vinna að því að Hveragerði verði áfram fallegur og vinalegur bær þar sem íbúar á öllum aldri geta átt gott líf. Höfundur er oddviti S-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun