Telur að múslimar geti ekki verið Svíar Kjartan Kjartansson skrifar 31. mars 2026 15:08 Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, segir múslima ekki geta verið sænska. Vísir/EPA Leiðtogi sænska fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata segir að trúaðir múslimar geti ekki talist sænskir. Nýkjörinn þingmaður í Danmörku sætir harðri gagnrýni fyrir að efast um þjóðerni talskonu annars flokks.
Ummælin um múslima lætur Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, falla í nýrri heimildarmynd sænska ríkisútvarpsins um hann. Þau tengdust nýlegum yfirlýsingum Simonu Mohamsson, menntamálaráðherra, um „blágult íslam“, inngildingu múslima í sænsku samfélagi. Mohamsson fæddist í Þýskalandi en faðir hennar er palestínskur en móðir hennar líbönsk. Åkesson segir ótækt að tala um blágult íslam þar sem hann telur næstútbreiddustu trúarbrögð heims ekki samræmast því að tilheyra sænsku þjóðinni. Fullyrðir hann að múslimar geri ekki greinarmun á því veraldlega og því trúarlega og að trúarbrögðin trompi allt annað. „Ef við göngum út frá því að þú sért múslimi og setjir þess vegna íslam ofar öllu öðru og að það sé íslam sem á stýra lífi þínu og allra annarra og ætti að stýra samfélaginu og lögum og svo framvegis þá á ég erfitt með að sjá að þú sért líka sænskur,“ segir Åkesson í myndinni og virðist ganga út frá að allir trúaðir múslimar aðhyllist bókstafstrú. Flokkur Åkesson ver minnihlutastjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra falli. Sagði talskonu annars flokk aðeins danska „lagalega“ Orðræða í garð innflytjenda, ekki síst frá löndum þar sem múslimar eru í meirihluta, hefur farið harðnandi víða í vestrænum ríkjum að undanförnu. Handan Eyrarsundsins er Nadja Nathalie Isaksen, nýkjörinn þingmaður Borgaraflokksins, í klandri eftir að hún sagði að talsmaður annars flokks sem er af afgönskum uppruna væri aðeins dönsk í „lagalegum skilningi“. Lars Boje Mathiesen, leiðtogi Borgaraflokksins, gefur frat í þá gagnrýni. „Að pólitískt rétthugsandi fólk haldi að ef það fer til Kína og eignist barn þar og verði kínverskir ríkisborgarar að það geri þá að Kínverjum. Það er frekar hlægilegt,“ skrifaði Boje á samfélagsmiðli og notaði hugtak sem var útbreitt áður en „woke“ tröllreið öllu. Vissulega væri það fólk kínverskir ríkisborgarar en „vilja þau í alvöru halda því fram í einlægni í þeirra óraunsæju fræðilegu og kennilegu heimsýn að þau séu Kínverjar?“ Boje hefur haft í nógu að snúast að verjast gagnrýni frá dönsku þingkosningunum í síðustu viku. Nýkjörinn þingmaður hans var rekinn eftir að ljóstrað var upp um vafasama fjármálagjörninga hans með gjaldþrota fyrirtæki.
Svíþjóð Trúmál Innflytjendamál Danmörk Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira