Að tala og tilheyra Baldur Sigurðsson skrifar 1. apríl 2026 06:02 Undanfarin ár hefur Íslendingum af erlendum uppruna hraðfjölgað. Aðallega er þetta fólk sem ráðið er til vinnu af íslenskum atvinnurekendum, t.d. í ferðaþjónustu, byggingariðnaði eða fiskeldi, og margir setjast hér að. Örlítið brot af þeim útlendingum sem hingað kemur er flóttafólk í leit að hæli eða vernd. Þetta fólk þráir ekkert heitar en að fá að vinna á íslenskum vinnumarkaði og setjast hér að. En meðan það bíður eftir kennitölu á það ekki í nein hús að venda, eru í raun allar bjargir bannaðar, vikum og jafnvel mánuðum saman. Rauði kross Íslands hefur liðsinnt þessu fólki með margvíslegum hætti og meðal annars skipulagt íslenskukennslu. Ég hef í þrjú ár starfað sem sjálfboðaliði við að kenna íslensku. Nemendurnir eru fullorðið fólk frá svæðum sem hrjáð eru af stríðum og annarri óöld eða hefur sætt ofsóknum. Flestir eru frá Venesúela, Úkraínu, Afganistan, Íran, Sýrlandi, Palestínu og Tyrklandi, og fáeinir eru frá Afríku. Við komuna hingað kunna flestir aðeins sitt móðurmál og kannski önnur mál frá sínu landsvæði, en mjög fáir kunna ensku, og þá bara eitthvert smáhrafl. Við höfum rekið okkur á hversu lítið námsefni í íslensku er til sem hentar fullorðnu fólki. Í því námsefni sem við höfum fundið er nánast skilyrði að kunna ensku til að geta haft eitthvert gagn af efninu, en til að kenna svona hópi er ekki til neins að útskýra neitt á ensku. Kennarinn verður annað hvort að geta brugðið fyrir sig öllum þeim tungumálum sem nemendur skilja – og í þessum hópi eru þau minnst átta – eða engu, tala bara íslensku! Fyrir tveimur árum fréttum við af því að búið væri að hanna smáforrit (app) til að kenna íslensku sem fengið hafði sérstaka viðurkenningu eða verðlaun. Þetta reyndist íslenskuforritið Bara tala. Við leituðum til höfunda og eigenda Bara tala um hvort Rauði krossinn mætti nota forritið fyrir skjólstæðinga sína og var því strax vel tekið. Fyrir kennara sem kennt hefur heila starfsævi með því að nota námsefni á pappír er Bara tala nýstárleg og spennandi aðferð við málakennslu. Þetta er gagnvirkt smáforrit / app sem notar myndir á markvissan hátt til að útskýra merkingu orðanna og því skiptir ekki máli hvaða tungumál nemandi kann, eða kann ekki. Þetta kemur sér afar vel þegar nemendur koma úr fjarlægum heimshlutum, líkt og í hópi hælisleitenda. Ólíkt flestu öðru námsefni fyrir útlendinga sitja hér allir við sama borð. Hver kafli í forritinu fjallar um ákveðið efni, t.d. liti, lönd, andlit, stofu, eldhús, strætó eða veitingahús. Lagður er inn orðaforði og setningar um viðfangsefni kaflans sem nota má til að tala um efnið og nemendur læra að svara spurningum og taka þátt í samtölum. Í hverjum kafla eru framburðaræfingar. Nýr orðaforði í hverjum kafla er um 20 orð. Kaflarnir eru til leiðsagnar flokkaðir eftir þyngd en notandi þarf ekki að fylgja neinni sérstakri röð heldur getur valið sér kafla eftir viðfangsefni kaflans. Fyrir okkur hjá Rauða krossinum var mikil áskorun að taka upp Bara tala. Við styðjumst áfram við kennslubók en bættum Bara tala við sem heimavinnu. Við völdum þá kafla í appinusem tengdust umfjöllunarefni kennslubókarinnar og leiðbeindum nemendum um hvernig best væri að nýta það. Stöku sinnum tökum við upp símann í kennslustundum og fylgjum því eftir að nemendur kunni þann orðaforða sem lagður er inn í Bara tala og geti tekið þátt í samræðum í líkingu við þær sem þjálfaðar eru í forritinu. Við þær aðstæður geta kennarar spunnið áfram, spurt nýrra spurninga og sett ný orð i samhengi við þau sem kennd eru í forritinu. Þannig sjá nemendur að þjálfun í orðum og setningum Bara tala nýtist í samskiptum við Íslendinga við raunverulegar aðstæður. Skemmtilegast hefur verið að vinna með þá kafla í Bara tala þar sem sett eru á svið samtöl, til dæmis á veitingahúsum. Þá getur kennari sett nemendur við borðið í hlutverk, þar sem einn leikur viðskiptavin, en annar afgreiðslumann, og svo verða báðir að bjarga sér. Nú hefur þróunarteymi Bara tala, nýtt þessa tilraunastarfsemi, og þróað spjallmenni í appinu. Með hjálp gervigreindar fer spjallmennið í ákveðið hlutverk og nemandinn æfir sig í að svara í aðstæðum sem endurspegla raunveruleikann. Hvort sem það er að panta kaffi, ræða við samstarfsfélaga eða leysa verkefni í vinnunni, þá er spjallmennið tilbúið í hlutverkaleik! Kennarar fá aðgang að stjórnborði þar sem þeir geta bætt við nemendum, fylgst með námsframvindu, sett upp áskoranir, stillt heimasvæði námskeiða og átt samskipti við nemendur. Nemendur eru á ýmsum aldri, með mjög ólíka menntun og bakgrunn. Flest okkar fólk kemur úr erfiðum aðstæðum og hefur ef til vill engin tök á að einbeita sér að námi í framandi tungu. En við sjáum, meðal annars á stjórnborðinu í Bara tala, að margir stunda námið vel, ná árangri og halda síðan frá okkur á önnur mið, út á atvinnumarkaðinn og til frekara náms í íslensku. Reynslan af kennslu hælisleitenda hjá Rauða krossinum sýnir að staðbundin og stafræn kennsla fara einkar vel saman. Hver og einn getur setið með símann sinn og þjálfað sig í íslensku hvenær sem hann hefur tóm til og þar hefur Bara tala marga kosti, til dæmis þann að auðvelt er að stjórna viðfangsefnum og hraða í yfirferð, og endurtaka eins oft og vill. En jafn nauðsynlegt er að nemendur fái hvatningu og aðhald frá kennara og tækifæri til að nota það sem þeir læra í símanum við raunverulegar aðstæður í samskiptum við Íslendinga. Árangurinn hjá Rauða krossinum hefur vakið athygli. Fyrir um ári tók Vinnumálastofnun upp Bara tala sem hluta af stuðningi við fólk af erlendum uppruna. Þar eru í dag tveir stórir hópar sem nýta forritið út um land allt. Annars vegar eru umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fá aðgang í gegnum Vinnumálastofnun. Hins vegar eru atvinnuleitendur af erlendum uppruna. Í dag eru 154 virkir notendur í gegnum Rauða krossinn og þeir hafa að meðaltali unnið um 7,5 klukkustundir með íslensku í Bara tala, og sá duglegasti hefur 80 vinnustundir að baki. Athygli vekur að 120 af þessum 154 nemendum eru hvorki skráðir hjá Vinnumálastofnun né stéttarfélögum. Þetta eru einstaklingar sem standa utan kerfisins og hefðu að öllum líkindum ekki haft aðgang að íslenskukennslu ef Rauði krossinn hefði ekki boðið upp á þennan valkost. Þetta sýnir svart á hvítu að innflytjendur í viðkvæmri stöðu, hvort sem þeir eru á flótta, umsækjendur um alþjóðlega vernd eða atvinnulausir í atvinnuleit, hafa mikinn áhuga á að læra tungumálið og leggja sig fram. Með stafrænum lausnum eins og Bara tala er tækifærið til staðar og margir hafa gripið það tækifæri í þeirri trú og von að íslenska sé lykillinn að íslensku samfélagi. Við Íslendingar getum látið þá von rætast með því að vera dugleg að tala íslensku við alla sem reyna. Höfundur er prófessor emeritus og sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innflytjendamál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun