Fyrsti táningurinn sem skorar fimmtíu stig í leik í NBA Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2026 12:00 Cooper Flagg skoraði 51 stig gegn Orlando Magic, þar af 24 í 4. leikhluta. getty/Richard Rodriguez Cooper Flagg, nítján ára nýliði Dallas Mavericks, skrifaði sig inn í sögubækur NBA-deildarinnar í körfubolta með frammistöðu sinni í leik gegn Orlando Magic í nótt. Flagg skoraði 51 stig í leiknum en hann er yngstur í sögu NBA til að skora fimmtíu stig eða meira í sama leiknum.
Flagg átti sjálfur metið sem hann setti í lok janúar. Hann skoraði þá 49 stig í leik gegn Charlotte Hornets. Hann bætti um betur þegar Orlando kom í heimsókn í nótt og skoraði 51 stig. Flagg er nítján ára og 103 daga gamall og er fyrsti táningurinn í sögu NBA sem skorar fimmtíu stig eða meira í einum og sama leiknum. Cooper Flagg (19 years, 103 days old) is the first teenager in NBA history with a 50-point game 😳pic.twitter.com/WllqERdLB5— ESPN Insights (@ESPNInsights) April 4, 2026 Stigin hefðu getað verið fleiri en Flagg var tekinn af velli þegar þrjár og hálf mínúta var eftir af leiknum. Úrslitin voru svo sem ráðin en Orlando vann ellefu stiga sigur, 127-138. Flagg fór mikinn í 4. leikhluta en þá skoraði hann 24 af 51 stigi sínu. Nýliðinn lék alls í 34 mínútur og hitti úr nítján af þrjátíu skotum sínum, þar af sex af níu fyrir utan þriggja stiga línuna. Þá nýtti Flagg öll sjö vítaskotin sem hann tók í leiknum. „Það er alltaf gaman að komast í svona ham. Karfan virðist stór. Samherjarnir leita að þér og hjálpa þér. En ég elska að vinna og það var aðalmarkmiðið. Það er erfitt að njóta sín til fulls þegar við erum 10-20 undir stærstan hluta leiksins,“ sagði Flagg eftir leikinn í American Airlines Center. Flagg er níundi nýliðinn sem skorar fimmtíu stig eða meira í leik í NBA. Hann er ekki í amalegum félagsskap en hinir sem hafa afrekað þetta eru Kareem Abdul-Jabbar, Rick Barry, Elgin Baylor, Wilt Chamberlain, Elvin Hayes, Allen Iverson, George Mikan, Earl Monroe og Brandon Jennings. Cooper Flagg is the 9th rookie ever to score 50+ points.The last 3 before him:Brandon Jennings (55 in 2009)Allen Iverson (50 in 1997)Kareem Abdul-Jabbar (51 in 1970) https://t.co/7qk4GkDIsn pic.twitter.com/OwlaIUgpka— NBA History (@NBAHistory) April 4, 2026 Flagg er jafnframt aðeins annar nýliðinn sem nær að skora 45 stig eða meira í leik tvisvar á sama tímabilinu. Hinn er sjálfur Michael Jordan. Í vetur hefur Flagg skorað 20,8 stig, tekið 6,6 fráköst og gefið 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Búist er við að baráttan um að vera valinn nýliði ársins standi milli hans og fyrrverandi samherja hans hjá Duke-háskólanum, Kon Knueppel sem leikur með Charlotte. Dallas er í 13. sæti Vesturdeildarinnar og á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina.
NBA Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira