Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. apríl 2026 15:31 Breki Karlsson formaður Neytendasamtakann segir að .riggja ára skoðun á íslenskum tryggingamarkaði sýni að hægt sé að hagræða verulega sem getu skilað neytendum verulegum ábata. Samtökin leggja til margvíslegar úrbætur á kerfinu. Vísir Stjórn Neytendasamtakanna sér tækifæri til að draga úr verðbólgu í gegnum vátryggingakerfið á Íslandi sem sé óþarflega flókið og kostnaðarsamt samanborið við tryggingakerfið á Norðurlöndunum. Tillögurnar verða kynntar ráðherrum ríkisstjórnarinnar á næstu vikum.
Stjórn Neytendasamtakanna gaf á dögunum út skýrslu um vátryggingamarkaðinn á Íslandi en þar er tryggingamarkaðurinn hér á landi borinn saman við markaðinn á Norðurlöndum. „Það kannski kom engum á óvart en tryggingar eru dýrar á Íslandi en það sem kom á óvart er að það er tiltölulega lítil arðsemi, og stundum engin, af ökutækjatryggingum en mikil arðsemi af líf- og sjúkdómatryggingum,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann telur kerfið hér á landi með þeim hætti að almenningur eigi erfitt með að átta sig á því hvað sé tryggt og hvað ekki auk þess sem verulega skorti á þá samhæfingu sem finna megi á Norðurlöndunum. Fulltrúar Neytendasamtakanna hafa lagt fram tillögur til úrbóta í sjö liðum sem miða að verulegri lækkun iðgjalda.„Og þar með koma til lækkunar á vísitölu neysluverðs og þar með verðbólgu um 0,2 til 0,3 prósentustig.“ Tækifæri til einföldunar Vátryggingakerfið hér á landi sé óþarflega flókið og tækifæri til einföldunar. „Ekki einungis munu iðgjöld lækka sem yrði heimilum mikil búbót, heldur vega tryggingar um eitt prósent í vísitölu neysluverðs og þar með myndi lækkun á iðgjöldum draga úr verðbólgu.“ Tryggja þurfi þó að þær úrbætur sem samtökin leggja til skili sér sannarlega til neytenda. Á næstu vikum munu fulltrúar Neytendasamtakanna kynna tillögurnar fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar. „Við vonum að það verði farið að þessum tillögum. Þetta er okkar framlag í baráttunni bæði gegn verðbólgu en líka gegn sanngjarnara og einfaldara kerfi,“ sagði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna en tillögurnar má nálgast á vef samtakanna.
Verðlag Efnahagsmál Tryggingar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármál heimilisins Neytendur Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira