„Fólk má velta sér upp úr hlutunum og við leyfum þeim að gera það“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 4. apríl 2026 22:22 Hörður Axel, Tene-fari í fyrri leik liðanna. Vísir/Pawel Keflavík tapaði fyrsta leiknum í einvíginu gegn KR en aðal umræðuefnið eftir þann leik var fjarvera þjálfara liðsins í aðdagandanum. Keflavíkurliðið sýndi þó í kvöld að hvorki tapið né umræðan hafi haft áhrif og tókst liðinu að jafna einvígið með ellefu stiga sigri, 88-77. „
Þetta var mjög góður leikur á milli tveggja góðra liða. Það voru mikil gæði í þessum leik og bæði lið að skjóta vel,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, eftir frábæran sigur liðsins í kvöld. Mikil umræða skapaðist eftir tap liðsins í fyrsta leiknum í einvíginu vegna fjarveru Harðar Axels sem var á Tenerife í aðdraganda leiksins. „Þetta er ferð sem var löngu plönuð og það vissu allir af henni fyrir löngu síðan innan liðsins og í kringum liðið. Undirbúningur okkar fyrir seinasta leik var eins og venjulega þó svo að ég hafi kannski ekki verið á staðnum að þá var ég mikið á Teams.“ Hörður sagði að umræðan hafi ekki haft áhrif á liðið enda allir fókuseraðir á verkefnið fyrir höndum. „Fólk má velta sér upp úr hlutunum og við leyfum þeim að gera það en á sama tíma þá erum við einbeitt á okkar verkefni og sýnum því mikla virðingu.“ Hann sagði jafnframt að hann hafi átt von á umræðu þar sem aðstæður væru sérstakar. „Ég vissi að það kæmi umræða um þetta enda er þetta kannski frekar sérstakt. Seinasta sumar var ég ákveðinn í að taka mér frí frá körfubolta og var búinn að panta þessa ferð. En svo kemur þetta verkefni upp og þetta eru stelpur sem að mér þykir mjög vænt um og mér langaði að þjálfa. Þá breytti ég þessari löngu ferð í smá pit stopp á Tene.“ Það virðist því sem sú umfjöllun sem fór af stað hafi haft lítil sem engin áhrif á Keflavíkurliðið sem sigraði frábærlega í kvöld.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Lætur hnefana tala HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landar Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Sjá meira