Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Aron Guðmundsson skrifar 5. apríl 2026 12:01 Antonelli á efsta þrepi verðlaunapallsins eftir sigur í japanska kappakstrinum um síðastliðna helgi Vísir/Getty Ítalinn ungi, Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes í Formúlu 1 hefur vakið verðskuldaða athygli eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Kimi er að slá hvert metið á fætur öðru og gæti orðið yngsti heimsmeistarinn í sögu mótaraðarinnar.
Þrátt fyrir unga aldur er Antonelli, sem er nítján ára gamall, að fara á kostum í upphafi Formúlu 1 tímabilsins og hefur unnið tvær af þremur keppnum tímabilsins til þessa. Ítalinn ungi leiðir heimsmeistaramótið og er fyrsti Ítalinn síðan árið 1952, síðan goðsögnin Alberto Ascari var og hét, til þess að vinna tvær keppnir í röð í Formúlu 1. Á skjön við spár flestra er Antonelli að skáka liðsfélaga sínum, hinum reynslumikla George Russell og hvert metið á fætur öðru er að falla í hendur Ítalans. Vefsíðan Motorsport.com hefur tekið saman þau met sem Antonelli hefur slegið sem yngsti ökuþórinn og hvaða met hann getur enn slegið. Nú þegar hefur Antonelli slegið þessi met: Hann er yngsti ökuþórinn til að vera á ráspól í keppni í Formúlu 1 (19 ára, 6 mánaða og 18 daga gamall). Það met setti hann í Kína kappakstrinum en metið var áður í eigu Sebastian Vettel. Antonelli er yngsti ökuþórinn til að setja hraðasta hring í keppni (18 ára, 7 mánaða og 12 daga gamall). Það mett setti hann í japanska kappakstrinum á síðasta ári. Metið var áður í eigu Max Verstappen. Þá er Antonelli yngsti ökuþórinn til að leiða keppni í Formúlu 1 (18 ára, 7 mánaða og 12 daga gamall) í japanska kappakstrinum á síðasta ári. Metið var áður í eigu Max Verstappen, Ítalinn ungi er einnig yngsti ökuþórinn til að leiða stigakeppni ökuþóra. Það met sló hann með sigri í japanska kappakstrinum fyrr á tímabilinu (19 ára, 7 mánaða og 4 daga gamall) Metið var áður í eigu Lewis Hamilton sem leiddi stigakeppni ökuþóra fyrst 22 ára gamall. Er því um töluverða bætingu að ræða. Þá er Kimi yngsti ökuþórinn til að ná þrennunni svokölluðu. Að vera á ráspól, vinna sömu keppni og setja hraðasta hring. Það gerði hann í Kína kappakstrinum fyrr á árinu (19 ára, 6 mánaða og 18 daga gamall) Fyrra metið var í eigu Sebastian Vettel. Eftirtektarverður árangur hjá Ítalanum unga sem hefur enn tækifæri til þess að bæta metum í safnið. Hér eru þau met sem Kimi getur enn slegið sem yngsti ökuþórinn: Hann getur orðið yngsti ökuþórinn til að ná hinu svokallaða Grand Chelem. Það er að eiga fullkomna helgi með því að ná ráspól í keppni, vinna keppnina, setja hraðasta hring og leiða keppnina allan tímann. Það met er nú í eigu Max Verstappen sem var 23 ára, níu mánaða og fjögurra daga gamall er hann náði því í Ástralíu árið 2021. Kimi hefur enn góðan tíma til að bæta það met. Eftirsóknasta metið væri án efa að verða yngsti heimsmeistarinn í sögu Formúlu 1. Það met er í eigu Sebastian Vettel sem varð fyrst heimsmeistari með liði Red Bull árið 2010 þá 23 ára, 4 mánaða og 11 daga gamall. Ef Antonelli verður heimsmeistari fyrir tímabilið 2029 tekst honum að slá það met.
Akstursíþróttir Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira